Frjáls verslun - 01.11.2010, Page 55
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 55
Hrunið bjargaði Blikum, Íslandsmeisturum karla árið 2010 í knattspyrnu. Boltinn er orð inn biss ness hjá félaginu og áætlar Frjáls versl un að tekjur félagsins á skömmum tíma séu yfir 200
millj ónir króna vegna sölu leikmanna og þátttökuréttar í undan keppni
Meist aradeildar Evrópu næsta sumar.
Mest munar um söluna á Gylfa Má Sigurðssyni frá Read ing til þýska
liðsins Hoffenheim en fyrir þá sölu fengu Blikar um tíu prósent af andvirð
inu eða 100 millj ónir kóna.
Yfir 200 milljónir í peningakassann
• Breiðablik fékk rúmlega 15 milljónir króna fyrir að taka þátt í
UEFAkeppninni síðasta sumar.
• Breiðablik fær yfir 100 milljónir króna vegna sölu Reading á
Gylfa Þór Sigurðssyni til þýska liðsins Hoffenheim síðasta sumar.
Gylfi Þór, sem kom ungur til Breiðabliks frá FH, fór frá Blikum
til Reading 2005.
• Breiðablik kemur til með að fá 30-50 milljónir króna fyrir
þátttöku sína í undankeppni Meistaradeildar Evrópu næsta sumar.
• Breiðablik fékk 20 til 30 milljónir fyrir söluna á Alfreð
Finnbogasyni til belgíska liðsins Lokeren.
• Breiðablik fékk 20 til 30 milljónir fyrir söluna á Jóhanni Berg
Guðmundssyni til AZ Alkmaar í Hollandi fyrir bráðum tveimur
árum.
Ekki er ólíklegt að fleiri leikmenn Blika verði seldir á næst unni og
meira fé bætist í kassann. Þannig hafa Krist inn Steindórsson og Elvar
Freyr Helgason verið til skoð unar hjá erlendum félögum.
Erlendum leikmönnum sagt upp
En förum aðeins yfir söguna um það hvernig hrunið bjarg aði Blikum.
Þegar óveðursský hrönnuðust upp yfir íslenskum fjármálamarkaði, sem
varð til þess að hann hrundi haustið 2008, fór að birta yfir herbúðum
knatt spyrnu manna Breiðabliks í Fífuhvammi í Kópavogi.
Það er næsta víst, eins og Bjarni Felixson íþrótta frétta maður sagði
svo oft, að hrunið er lykillinn að því Blikar hömpuðu Íslands meist
ara titlinum í knattspyrnu karla í fyrsta sinn tveimur árum síðar – á
haustmánuðum 2010.
Hrunið varð til þess að forráðamenn Breiðabliks urðu að hugsa sinn
gang og sníða sér stakk eftir vexti. Margir af öflugustu styrktaraðilum
Breiðabliks, sem höfðu lagt geysi legt fé í félagið, héldu að sér höndum
og var Mile stone ehf. einn þeirra.
Þegar hrunið varð fóru forráðamenn Breiðabliks að skera niður
rekstrarkostnað og laun þjálfara og leik manna til að endar næðu saman.
Laun Ólafs Helga Kristjáns sonar þjálfara voru lækkuð um 30% og
ákveðið að segja upp samningum við fimm erlenda leikmenn Breiðabliks.
Hér var um að ræða leikmenn sem höfðu leikið stórt hlutverk hjá
Blikum, en voru dýrir á fóðrum. Einnig var ákveðið að endurnýja ekki
samning við einn besta leik mann liðsins, Marel J. Baldvinsson, og hinn
efnilegi Jóhann Berg Guðmundsson var seldur til AZ Alkmaar í Hollandi.
Arnar og ungarnir
Blikar byrjuðu á því að kalla heim aftur unga leikmenn sem höfðu
verið í láni hjá öðrum félögum, eins og Hauk Baldvinsson, Alfreð
Finnbogason, Kára Ársælsson og Guðmund Kristjánsson.
Tekin var sú ákvörðun að byggja Breiðabliksliðið á ungum leik
mönnum og segja við þá: Nú er ykkar tími kominn – standið á eigin
fótum og sýnið hvers þið eruð megnugir. Blikarnir gáfu ungum
leikmönnum tækifæri, sem þeir hefðu eflaust ekki fengið ef hrunið
hefði ekki orðið, sem varð til þess að fimm erlendir leikmenn voru
látnir fara.
Það var mikill styrkur fyrir ungu strákana að Arnar Grét ars son, sem
hafði öðlast mikla reynslu sem atvinnu maður í Grikklandi og Belgíu, var
kominn heim á ný og var hann eins og önd með ungana sína – foringinn á
miðjunni; hokinn af reynslu sem leikmaður með AEK Aþenu og Lokeren.
Hinir ungu leikmenn Breiðabliks, sem höfðu flestir verið meist arar með
Blikum upp yngri flokka og þekktu því hvernig var að vera sigurvegari,
fögnuðu sigri í Bikar keppni KSÍ 2009 – fyrsti stóri bikarinn hjá Blikum
var í höfn.
Margir Breiðabliksmenn voru ekki bjartsýnir þegar Arnar ákvað að
yfirgefa Breiðablik í byrjun árs 2010 og halda til AEK Aþenu, þar sem
hann var ráðinn sem tæknilegur ráðgjafi í sambandi við þjálfun hjá gríska
félaginu.
Strákarnir stóðust prófið
Blikarnir, sem höfðu fengið góðan liðstyrk frá Víkingi 2009 er
markvörðurinn Ingvar Þór Kala gekk til liðs við þá, fengu annan
góðan liðsmann frá Víkingi fyrir keppnistímabilið 2010 – Jökul I.
Elísabetarson, sem féll mjög vel inn í hópinn. Jökull náði strax mjög
góðum tökum á miðjunni, var yfirvegaður og útsjónarsamur. Það má
með sanni segja að hann hafði náð að fylla skarðið sem Arnar skildi eftir.
Ingvar Þór (27 ára) og Jökull (26 ára) hafa gert stór góða hluti hjá Blikum
á stuttum tíma. Það gekk eftir síðasta sumar sem þjálfararnir Pétur
Pétursson og Úlfar Hinriks son, sem höfðu þjálfað hina ungu leikmenn
Blika, spáðu – að með meiri reynslu ættu hinir ungu leikmenn eftir að
þroskast og verða mjög sigursælir í framtíðinni. Strák arnir náðu þeim
þroska fyrr en bjartsýnustu menn þorðu að vona.
Blikar léku mjög skemmtilega knattspyrnu í sumar, þeir gáfust ekki upp
og stóðust prófið þegar á hólminn var kom ið. Stóðu uppi sem meistarar
í æsispennandi loka bar áttu við þáverandi meistara FH og Eyjamenn.
Með liðinu lék hópur ungra leikmanna en meðalaldur liðsins var 22,9
ár. Blikarnir eru með eitt yngsta meistara lið Íslandssögunnar, aðeins tvö
meistaralið eru yngri; með al aldur Víkingsliðsins sem varð meistari 1920
var 18,1 ár og meðalaldur leikmanna Framliðsins sem varð meist ari án
keppni 1913 var 18,7 ár.
Blikarnir gáfu ungum leikmönnum tækifæri, sem
þeir hefðu eflaust ekki fengið ef hrunið hefði
ekki orðið, sem varð til þess að fimm erlendir
leikmenn voru látnir fara.
Kristinn Steindórsson.
MYNDIR: GEIR GUÐSTEINSSON