Frjáls verslun - 01.11.2010, Qupperneq 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0
HVAÐ SEGJA ÞAU UM ÁRAMÓT?
PÁLL BRAGASON,
forstjóri Fálkans:
Tel langt í land með að krónan fari á flot
FORRÁÐAMENN FYRIRTÆKJA
Hvaða árangur ert þú ánægðastur með
innan þíns fyrirtækis á árinu?
Stöðugan og heilbrigðan rekstur.
Áttu von á því að gjaldeyrishöftin verði
afnumin á næsta ári?
Ekki að neinu marki. Á þó von á að byrjað
verði að slaka á innstreymishöftum, en tel
langt í land með að krónan fari á flot, geri
hún það nokkurn tíma.
Óttast þú fjármagnsflæði frá landinu
með afnámi gjaldeyrishafta?
Skyndilegt og algert afnám gjaldeyris
hafta væri óráðlegt. Hætt er við að fjár
flæði úr landi yrði illviðráðanlegt. Krónan
er einfaldlega ekki haffær.
Hvað telur þú að sé algengasta
umræðuefnið á meðal stjórnenda
núna?
Af ótalmörgu er að taka, en ég nefni
þrennt. Eitt er stóraukin skatt heimta,
mikill hallarekstur ríkissjóðs og ótak
mörkuð ríkisábyrgð á banka inni stæð
um. Þetta eru allt baneitruð peð, sem
veikja atvinnustarfsemi og vinna gegn
fjárfestingu og endurnýjun.
Annað er óskiljanleg þvermóðska sumra
ráðamanna gegn umsóknarferlinu að
ESB. Það er afkáralegt, þegar t.d. er
beinlínis staðið gegn útréttri hjálparhönd
til að hressa upp á opinbera stjórnsýslu,
sem víða er bágborin, sbr. skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
Í þriðja lagi vekur aðkoma banka og fram
takssjóðs að reksti gjaldþrota fyrir tækja
mikla tortryggni. Að „bjarga störfum“ með
því að hrúga líkum í öndun arvélar, ef nota
má þá líkingu, eru undarleg fræði. Það
heftir náttúrulega grisjun á markaði, og
vinnur gegn endur reisn atvinnulífsins.
Bankar verða að horfast í augu við þá
staðreynd, að þeir njóta nánast einskis
trausts í samfélaginu.
Finnst þér bankarnir hreyfa sig hraðar
við að afskrifa skuldir fyrirtækja og
endurskipuleggja fjármál þeirra?
Bankar eiga án tafar (og hefðu átt að vera
búnir fyrir lifandis löngu) að ganga í að:
Afskrifa allar óinnheimtanlegar kröfur.
Leiðrétta myntkörfulán fyrirtækja til að
eyða óvissu.
Setja í þrot fyrirtæki, sem eru með bæði
vonlausan rekstur og ónýtan efnahag.
Hjálpa til við að finna nýja eigendur eða
meðeigendur að fyrirtækjum sem eru
með nýtilegan rekstur en ónýtan efnahag.
Takist það ekki innan hæfilegs frests, t.d.
612 mánaða, þá fari þau í þrot.
Hjálpa eigendum fyrirtækja með nýtilegan
rekstur en erfiðan efnahag að komast á
réttan kjöl, t.d. með blöndu af afskriftum
og nýju hlutafé.
Og umfram allt, drífa sig!
Hvað var minnisstæðast hjá sjálfum
þér á árinu?
Einkar gott og gæfuríkt fjölskylduár.
Þau hafa reyndar jafnan verið góð, Guði
sé lof, en sjaldan eða aldrei höfum við
hjónin átt jafnmargar ánægjustundir með
börnum okkar og barnabörnum og á
þessu ári.
Páll Bragason