Frjáls verslun - 01.11.2010, Page 71
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 71
Við þurfum virkilega að passa upp
á innkaupin
Áttu von á því að gjaldeyrishöftin verði
afnumin á næsta ári?
Nei, en ég tel að það verði slakað á þeim.
Óttast þú fjármagnsflæði frá land inu
með afnámi gjaldeyris hafta?
Nei, en það færi eftir því í hversu stórum
skrefum það yrði gert og hvað annað
verður búið að gera. Fer eftir því hvernig
ríkis stjórnin setur þetta upp.
Hvað telur þú að sé algengasta
umræðuefnið á meðal stjórnenda
núna?
Ég hugsa að það sé niðurskurður. Í
mínum geira hefur matvara og vín hækk
að upp úr öllu valdi og maður þarf að
passa vel hvar og hvað maður verslar
svo það sé hægt að bjóða kúnnunum
upp á hágæða mat og vín á viðráðanlegu
verði. Vörur hafa hækkað oft um meira
en 100% án þess að maður sé látinn vita
og þá gengur ekki að hafa slíkan varning
á boðstólum. Við erum svo heppin að
við höfum ekki þurft að segja neinu af
okkar frábæra starfsfólki upp störfum
en við þurfum virkilega að passa upp á
innkaupin.
Finnst þér bankarnir hreyfa sig hraðar
við að afskrifa skuldir fyrirtækja og
endurskipuleggja fjármál þeirra?
Mér finnst að þetta mætti ganga hraðar
og það ætti ekki að setja alla undir einn
hatt. Mætti skoða hvert mál fyrir sig og
taka ákvörðun út frá því.
Hvað var minnisstæðast hjá sjálfri þér
á árinu?
Það gerðist margt minnisstætt hjá mér
á árinu sem er að líða. Útkoma mat
reiðslu bókarinnar Fiskmarkaðarins var
skemmtileg stund sem og besti árangur
íslenska kokkalandsliðsins á heims meist
aramótinu í matreiðslu.
HEIMIR ÖRN HERBERTSSON,
faglegur framkvæmdastjóri LEX:
Gjaldeyrishöftin mega ekki festast
í sessi og þykja sjálfsögð
FORRÁÐAMENN FYRIRTÆKJA
Hrefna Rósa Sætran
Hvaða árangur ert þú ánægðastur með
innan þíns fyrirtækis á árinu?
LEX bættist góður liðstyrkur á árinu, mikil
vinna var lögð í innri skipulagningu og
sam keppnisstaða félagsins fyrir komandi
ár er mjög sterk.
Áttu von á því að gjaldeyrishöftin verði
afnumin á næsta ári?
Nei, því miður sér maður fá teikn á lofti
um það en vonandi verða stigin trú verð
ug skref í þá átt. Það þarf a.m.k. að ger
ast við fyrsta tækifæri. Þau mega ekki
festast í sessi og þykja sjálfsögð.
Óttast þú fjármagnsflæði frá landinu
með afnámi gjaldeyrishafta?
Það er ekki ólíklegt að einhverjir vilji færa
fjármuni sína annað þegar það verður