Frjáls verslun - 01.11.2010, Page 73
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 73
HVAÐ SEGJA ÞAU UM ÁRAMÓT?
Mikilvægt að fara
að fjár festa í framtíðinni
KRISTJÁN DANÍELSSON,
framkvæmdastjóri Hótels Sögu:
Eyjafjallajökull skilur eftir
innstæðu í lærdómsbankanum
FORRÁÐAMENN FYRIRTÆKJA
Hvaða árangur ert þú ánægðastur með
innan þíns fyrirtækis á árinu?
Ég er ánægðastur með samstarfsfólk
mitt, sem lagði mikið á sig og var tilbúið að
ganga langt fyrir fyrirtækið, og allir starfs
menn fyrirtækisins hafa unnið hörð um
hönd um undanfarin ár í erfiðu umhverfi.
Áttu von á því að gjaldeyrishöftin verði
afnumin á næsta ári?
Nei, ég á ekki von á því. Held að óvissan
sé ennþá of mikil og stjórnvöld hafi ekki
kjark til að taka á þeirri óvissu.
Óttast þú fjármagnsflæði frá landinu
með afnámi gjaldeyrishafta?
Já, ég geri það, en ég skil að þau voru
nauðsynleg þó svo að gjaldeyrishöftin
hafi skapað erfitt umhverfi fyrir fyrirtæki
í alþjóðastarfsemi, en nú þurfum við að
fara að taka afleiðingum gjörða okkar og
aflétta þeim.
Hvað telur þú að sé algengasta
umræðuefnið á meðal stjórnenda
núna?
Það er auðvitað mikið talað um hrunið og
aðdragandann ásamt fyrirsögnum hvers
tíma, sem koma alltaf jafnmikið á óvart.
Allir hafa skoðanir og samsæriskenningar
sem gaman er að hlusta á. Nú þarf að
hætta að velta sér upp úr þessu og halda
áfram, horfa fram á veginn, því þar liggja
tækifærin, en ekki í fortíðinni.
Finnst þér bankarnir hreyfa sig hraðar
við að afskrifa skuldir fyrirtækja og
endurskipuleggja fjármál þeirra?
Það virðist hafa komið hreyfing á þau
mál í haust, virðist sem það markmið hafi
verið sett að minnka staflann af vanda
málum og reyna að leysa þau.
Hvað var minnisstæðast hjá sjálfum
þér á árinu?
Auðvitað hafði Eyjafjallajökull mikil áhrif
á reksturinn og skilur eftir innistæðu í
lærdómsbankanum en fyrir utan það
er koma nýs fjölskyldumeðlims minni s
stæðust.
Kristján Daníelsson
GRÍMUR SÆMUNDSEN,
forstjóri Bláa lónsins:
Aðgerða- og getuleysi ríkisstjórnarinnar
FORRÁÐAMENN FYRIRTÆKJA
Hvaða árangur ert þú ánægðastur með
innan þíns fyrirtækis á árinu?
Ég er mjög ánægður með árangur mark
aðs átaks okkar innanlands, sem voru
viðbrögð við eldgosinu í Eyjafjallajökli.
Íslenskum gestum í Bláa lónið fjölgaði
um 87% í maí miðað við sama mánuð
árið áður.
Áttu von á því að gjaldeyrishöftin verði
afnumin á næsta ári?
Nei.