Frjáls verslun - 01.11.2010, Page 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0
HVAÐ SEGJA ÞAU UM ÁRAMÓT?
HELGI MAGNÚSSON,
formaður Samtaka iðnaðarins:
Iðnaðurinn kallar eftir auknum hagvexti
FORMENN HAGSMUNASAMTAKA
Hvað leggur þín atvinnugrein
helst upp úr að gert
verði í efnahagsmálum
þjóðarinnar?
Iðnaðurinn kallar eftir auknum
hagvexti. Við getum endurreist
efnahag þjóðarinnar og bætt
stöðu heimila og fyrir tækja
til mikilla muna ef hér verður
rekin markviss hag vaxtar
stefna með aukna verð mæta
sköpun og vaxandi gjald
eyris tekjur að leiðarljósi. Þá
get um við komist hratt upp úr
öldu dalnum. Við þurfum að
nýta ríkulegar náttúruauðlindir
þjóðarinnar með réttum og
hagkvæmum hætti. Gildir það
jafnt um orkuauðlindir, fisk
stofnana og annað. Þó þannig
að skynsemi og virðing ráði.
Núverandi ríkisstjórn hefur
því miður ekki sýnt þessum
grundvallaratriðum nægan
skilning. Svo virðist sem ofur
skattheimta eigi að bjarga
þjóðinni úr úr vandanum.
Það mun ekki gerast og
hafa þveröfug áhrif. Því fyrr
sem snúið verður af vegi
skatt píningar því betra. Við
munum ekki komast út úr
kreppunni fyrr en breytt
verður um skattastefnu,
verðmætasköpun sett í for
gang og gjaldeyrishöftum
aflétt.
Í iðnaðinum leggjum við
áherslu á nýsköpun. Samtök
iðnaðarins standa fyrir átaks
verkefni sem nefnt hefur
verið ÁR NÝSKÖPUNAR.
Með því viljum við beina
athygli að þeim tækifærum
sem felast í nýsköpun í
iðnaði og atvinnulífinu öllu.
Við finnum mikla undiröldu
og mikinn vilja í smáum og
stór um fyrirtækjum til að efla
atvinnulífið, skapa störf og
auka útflutningstekjur. Það
er unnt að leysa mikla krafta
úr læðingi. Hugmyndum er
hrint í framkvæmd og þeim
breytt í verðmæti. Til þess
að vel takist til þarf að bæta
starfsskilyrði atvinnulífsins
og koma á umbótum í
skattamálum og almennri
stjórn sýslu með aukinn skiln
ing á verðmætasköpun að
leiðarljósi.
aflaheimilda skotið upp kollinum á ný
í tillögum sjávar út vegs ráðherra á fundi
ríkis stjórnar. Um þessar mundir er einmitt
verið að vinna að breytingum á stjórnkerfi
fisk veiða á bak við luktar dyr án þess
að þeir sem í sjávarútvegi starfa eigi þar
nokkra aðkomu, svo ótrúlega sem það
kann að hljóma. Það er eflaust í anda
stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um
opna stjórnsýslu, aukið gagnsæi og lýð
ræðis umbætur.
Samskipti ríkisstjórnarinnar við forsvars
menn atvinnulífsins hafa verið með þeim
hætti að lítið sem ekkert traust ríkir orðið
þar á milli. Samtök atvinnulífsins sögðu
sig frá stöðugleikasáttmálanum vegna
vanefnda á honum af hálfu stjórnvalda. Sú
reynsla er ekki gott veganesti inn í erfiðar
kjaraviðræður og verður ekki til þess að
auðvelda úrlausn mála.
Tilhneig ing stjórnvalda til að auka ríkis
afskipti í atvinnurekstri er arfleifð lið inna
tíma sem fæstir vilja upplifa á ný. Auk
inn ríkisrekstur er ekki leiðin til þess að
koma hjólum atvinnulífsins af stað. Til
þess að atvinnulíf geti blómstrað þarf
sam þættingu nokkurra lykilatriða. Koma
þarf bankaþjónustu í eðlilegt horf. Skilyrði
til fjárfestingar þurfa að vera þannig að
langtímahagsmunir séu tryggðir, aðeins
þannig er hægt að skapa störf til fram
tíðar. Erlend fjárfesting er íslensku atvinnu
lífi nauðsynleg. Til þess að af henni geti
orðið þarf eðlilega fjár málastjórn ríkis ins
og samkeppnishæft skatta og rekstrar
umhverfi. Mikil vægt er að stjórnvöld
hafi að leiðar ljósi lang tímasjónarmið um
sam félags og efnahagsþróun og að
skatt kerfisbreytingar taki mið af grund
vallar sjónarmiðum en ekki tíma bundnum
sveiflum.
KÍNA