Frjáls verslun - 01.11.2010, Qupperneq 91
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 91
MYNDLIST / SÆLKERINN / HESTAMENNSKA / KVIKMYNDIR / BÍLAR
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
Fljótlega kemur nýr Nissan Patrol á mark
aðinn, stór og sterkur bíll, sem á að keppa
við Range Rover, Mercedes Benz GL og
Land Cruiser 200. Þetta er bíll sem Nissan
segir að sé bæði betri og ódýrari. Bíllinn
er byggður á grind, en með nýja gerð loft
púðafjöðrunar sem gerir þennan stóra bíl
einstaklega rásfastan. Hann kemur með
sjö gíra sjálfskiptingu og 400 hestafla vél í
byrjun. Erlendis virðist vera góður markaður
fyrir stóra og öfluga fjórhjóladrifsbíla, þótt
þessi ríkisstjórn vilji að allir keyri um á
Toyota iQ eða Yaris.
TRABANT
Á stærstu bílasýningu í heimi, Frankfurt
Auto Show, verður nú í haust kynntur nýr
bíll, Trabant nT, en hann kemur á markað
á næsta ári. Trabantinn var framleidd ur í
AusturÞýskalandi á árunum 19571991,
en eftir fall kommúnismans varð trabbinn
tákngerving ur fyrir hve framleiðslan var léleg
hjá sósíalist unum hinum megin við járntjaldið.
Nýi Trabantinn verður ekki ólíkur þeim gamla
að útliti, en nú er þetta lúxussmábíll með
rafmót or upp á 75 hestöfl. Hámarkshraðinn
verður 130 km og hleðslan dugir í 250
kílómetra ferðalag; frá Reykjavík og norður á
Blönduós á einni hleðslu. Spennandi.
TEXTI OG LJÓSMYND: PÁLL STEFÁNSSON O.FL.
Bílar
NÝR NISSAN PATROL /
INFINITY QX56
ÖRYGGI Á ODDINN
Nýr Volvo V60 var að koma á markaðinn og markar viss tíma mót hjá kínversk-sænska fram leiðandanum Volvo. Þetta er sportskutbíll sem á og getur keppt
við það besta og skemmtilegasta sem aðrir eðal framleiðendur
eins og Audi og Alfa Romeo bjóða upp á. Volvo, sem hefur
verið braut ryðjandi í öryggismálum síðustu 50 árin, kemur
hér með bíl sem ekki er bara öruggur fyrir þá sem sitja í hon-
um, heldur er hann með innbyggðan radar í stuðara, radar
sem dregur 150 metra – og tekur völdin af ökumanni, stöðvar
bif reiðina í tæka tíð ef t.d. börn eru í hættu og fyrir á veginum.
Eins er V60 með veglínuskynjara, þannig að bíllinn varar við
ef maður gleymir sér andartak. Hönnun bílsins er svipsterk
og sportleg og innrétting og stjórntæki eins og best verður á
kosið. Þarna slær Volvo nýjan tón, kemur með bíl sem höfðar
til yngri kaup enda sem vilja kraft og snerpu; sexí bíl.
Volvo V60