Frjáls verslun - 01.04.2007, Side 18
18 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
Í slendingar hafa sem kunnugt er haslað sér völl í Danmörku, ekki síst í fjármálalífinu. Það hefur verið minna um það að Danir hafi sótt inn á íslenska markaðinn. Nú kann að verða breyting þar á því að Forstædernes Bank hyggst hefja sölu á áhættubréfum með
tryggðum höfuðstól. Bréfin hafa ekki verið markaðssett hér á landi
ennþá en samt segist bankinn vera kominn með nokkra íslenska við-
skiptavini.
Frjáls verslun hitti nýlega tvo af forráðamönnum
bankans í glæsilegum húsakynnum nálægt Íslands-
bryggju og það var hlýlegt að sjá að í næsta húsi
var Islands Hotel, nýtt og fallegt hótel. Þar voru
þeir Kjeld Mosebo Christensen bankastjóri og Bo
Schmidt, framkvæmdastjóri fjárfestinga. Bankinn
sjálfur er í nýju húsi á mjög skemmtilegum stað.
Útsýnið úr þeim skrifstofum sem snúa að sjónum er
glæsilegt. Áður en við byrjum ræðum við hve mörg
íslensk fyrirtæki hafi komið sér fyrir í Danmörku.
Hlutafélag í miklum vexti
Forstædernes Bank (FB) er ekki einn af stærstu
bönkum í Danmörku. Satt að segja hafði blaðamaður ekki heyrt
hans getið fyrr en nú í vor. Á undanförnum árum hefur markaðs-
hlutdeild bankans í Danmörku nærri tvöfaldast, en er þó aðeins
um 1,4%. Meginhluti starfseminnar er á Sjálandi, í nágrenni Kaup-
mannahafnar, en nýlega opnaði bankinn líka skrifstofu í Árósum á
Jótlandi. Dönsk fyrirtæki eru oft staðbundin. Líklega er þetta arfur
frá því áður en brýr tengdu eyjarnar við Jótland.
Á því markaðssvæði þar sem hann starfar er hlutur bankans tals-
vert stærri eða milli átta og tíu prósent. Hann hefur í auknum mæli
snúið sér að viðskiptum við fyrirtæki og það virðist hafa reynst vel því
að hann hefur bæði stækkað í umsvifum og hagnaði. Bréf í FB eru
skráð á hlutabréfamarkaði og hafa hækkað um 41% á ári undanfarin
fimm ár.
Hvers vegna Ísland?
Það er eðlilegt að spyrja fyrst hvers vegna FB sé að velta fyrir sér við-
skiptum á Íslandi. Þeir Kjeld og Bo svara því til að
auðvitað hafi þeir séð að Íslendingar hafi haft áhuga
á fjárfestingum í Danmörku undanfarin ár. Einn
af fulltrúum þeirra hefur haft tengsl við nokkra
íslenska fjárfesta og þeir hafa sýnt þeim verðbréfum,
sem FB býður upp á, áhuga. Bankinn hefur á
undanförnum árum náð góðum árangri með verð-
bréfum sem tryggja höfuðstólsverðmæti fjárfesting-
arinnar en geta samt boðið upp á álitlega ávöxtun.
Þessi verðbréf henta mörgum sem vilja taka þátt í
hlutabréfamörkuðum eða öðrum fjárfestingum þar
sem ávöxtun hefur verið góð en áhættan til skamms
tíma meiri en einstaklingar vilja taka.
„Galdurinn er sá að fjárfestingunni bak við
bréfin er skipt upp. Stór hluti fer í „örugg“ skuldabréf sem gefa fyrir
fram ákveðna ávöxtun. Hitt er sett í „áhættufjárfestingu“. Með þessu
móti geta íhaldssamir fjárfestar verið með í ýmsum fjárfestingum
sem þeim dytti alla jafna ekki í hug að vera með í. Þá geta þeir keypt
bréf með grunntryggingu en samt átt möguleika á því að njóta hárrar
ávöxtunar ef þessi efni hækka mikið í verði,“ segir Bo Schmidt.
Þeir nefna að bankinn hafi boðið upp á verðbréf með ávöxtun
í hlutabréfum í Asíu og Suður-Ameríku, svo að dæmi séu tekin.
„Sérfræðingar okkar velja bréfin eins og þeir best geta þannig að
viðskiptavinurinn nýtur þar með þekkingar þeirra, en jafnvel ef ekki
Íslendingar hafa að undanförnu haslað sér völl í Danmörku en nú snýr danski bankinn
Forstædernes Bank við blaðinu og sækir inn á íslenska markaðinn með nýja tegund verðbréfa.
TEXT OG MYNDIR: BENEDIKT JÓHANNESSON
Danski bankinn Forstædernes Bank:
SAMEINAR GÓÐA ÁVÖXTUN
OG LITLA ÁHÆTTU
B A N K A V I Ð S K I P T I
Forstædernes Bank
hyggst hefja sölu á
áhættubréfum með
tryggðum höfuðstól.
Bréfin hafa ekki verið
markaðssett hér á landi
ennþá en bankinn er
engu að síður kominn
með nokkra íslenska
viðskiptavini.