Frjáls verslun - 01.04.2007, Qupperneq 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
D A G B Ó K I N
24. maí
Kaupþing
ráðgjafi Ashley
Morgunblaðið sagði þennan dag
frá því að Kaupþing í London
hefði verið í hlutverki ráðgjafa
og miðlara í kaupum breska
auðkýfingsins Mike Ashley á
41,6% hlut í enska knattspyrnu-
félaginu Newcastle. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins var
það Ashley sem átti frumkvæðið
að samstarfinu. Ashley mun
gera yfirtökutilboð í félagið sem
skráð er á hlutabréfamarkað.
29. maí
Eimskip gerir
yfirtökutilboð í
kanadískt fyrirtæki
Ein af stórfréttum ársins
kom þennan dag, því að á
blaðamannafundi í Eimskip
var greint frá því að Eimskip
Holdings Inc, nýstofnað dótt-
urfélag Eimskipafélag Íslands,
hefði gert yfirtökutilboð í allt
hlutafé kanadíska fyrirtækisins
Versacold Income Fund. Fram
kom að stjórn Versacold hefði
samþykkt samhljóða að mæla
með yfirtökutilboðinu.
Yfirtökutilboðið hljóðar upp
á 67 milljarða króna. Eimskip
hefur nú þegar tryggt sér um
25,3% hlutafjár í félaginu.
Versacold á og rekur
72 kæli- og frystigeymslur
í Bandaríkjunum, Kanada,
Ástralíu, Nýja Sjálandi og
Argentínu. Í tilkynningu frá
Eimskip segir að taki hluthafar
Versacold tilboði Eimskips verði
félagið stærsta frysti- og kæli-
geymslufyrirtæki í heimi með
um 180 kæli- og frystigeymslur í
fimm heimsálfum.
Gangi kaupin eftir eykst velta
Eimskips um 40 milljarða króna
og verður um 140 milljarðar
króna á ársgrundvelli á næsta
ári. Velta Eimskips á þessu ári
er áætluð um 100 milljarðar
króna.
29. maí
Nýr forstjóri
Straums-Burðaráss
Tvær stórfréttir voru í viðskipta-
lífinu þennan dag því Straumur-
Buðarás tilkynnti að William Fall,
fyrrverandi forstjóri alþjóðasviðs
Bank of America, hefði verið
ráðinn forstjóri Straums-
Burðaráss í stað Friðriks
Jóhannssonar sem verið hefur
forstjóri bankans frá því í júní í
fyrra.
Á blaðamannafundi sagði
Björgólfur Thor Björgólfsson,
stjórnarformaður bankans,
að ráðning Williams markaði
mikilvæg tímamót í umbreytingu
bankans.
Fram kom hjá Björgólfi Thor
og William að markmiðið væri
að gera Straum-Burðarás að
besta fjárfestingabanka á
Norðurlöndum.
William útskrifaðist með
MA-gráðu í náttúruvísindum
frá St. Catherine’s College við
Cambridge-háskóla og lauk
einnig BA-gráðu í dýralækn-
ingum.
William gekk til liðs við Bank
of America í janúar 1995 en
áður en hann varð forstjóri
alþjóðasviðs var hann m.a.
forstjóri alþjóðlegs áhættustýr-
ingarsviðs, forstjóri alþjóðlegra
markaðsviðskipta með áherslu
á Evrópu, Asíu og Suður-
Ameríku og forstjóri alþjóðlegrar
söludeildar á sviði vaxtatengdra
afleiðusamninga.
GLÆSILEGUSTU
SUNDFÖT LANDSINS
‘07 70ÁR Á FLUGI
Vildarklúbbur
Það er ótrúlegt hvað þau eru tilbúin
að ganga langt til að fanga athygli ykkar.
Ekki láta þau ganga lengra
KYNNTU ÞÉR KOSTI
VILDARKLÚBBS ICELANDAIR.
Þú safnar Vildarpunktum í viðskiptum við Icelandair, Flugfélag Íslands,
hjá Icelandair hótelunum og öðrum samstarfsaðilum Vildarklúbbs Icelandair.
• Þú notar Vildarpunktana þína til þess að fara út í heim í áætlunarflugi
Icelandair – börn að 16 ára aldri fljúga á helmingspunktum.
• Þú notar Vildarpunktana til greiðslu fyrir gistingu á yfir
100 hótelum víðs vegar um heim og fyrir bílaleigubíla.
• Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna að meðaltali á hverju ári
Vildarpunktum sem samsvara greiðslu fyrir flugfari til Evrópu
með Icelandair.
• Þú getur notað Vildarpunktana þína sem greiðslu að hluta
fyrir flugfar og greitt afganginn með peningum.
Pálmi Haraldsson, skemmti-
legur og orðheppinn.
Yfirtökutilboðið kynnt. Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips.
23. maí
„ÉG ÆTLA AÐ
HRINGJA Í HANN
NÚNA.“
Pálmi Haraldsson í Fons er
skemmtilegur og orðhepp-
inn. Þennan dag var sagt
frá því að Fons hefði keypt
32% hlut í danska fast-
eignafélaginu Keops, en
Baugur Group átti þar fyrir
29% þannig að eftir kaupin
eiga Íslendingar núna rúm
60% í félaginu. Pálmi keypti
hlutinn af Ole Vagner, stofn-
anda og fyrrum forstjóra
Keops, og greiddi fyrir hann
um 15 milljarða króna.
Pálmi sagði við danska
fjölmiðla að kaupin hefðu
borið brátt að. Hann hefði
gert Ole tilboð um morg-
uninn og því hefði verið
snarlega tekið.
Þegar Pálmi var spurður
að því hvort Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri
Baugs, hefði ekki vitað af
tilboðinu svaraði Pálmi að
bragði að svo hefði ekki
verið. „En ég ætla að
hringja í hann núna.“
William Fall, hinn nýi forstjóri
Straums-Burðaráss, er fyrr-
verandi forstjóri alþjóðasviðs
Bank of America.