Frjáls verslun - 01.04.2007, Qupperneq 50
KYNNING50 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
Á dögunum kynnti Glitnir nýjung í bankaþjónustu á Íslandi, Vildarklúbb Glitnis. Viðskiptavinir Glitnis, sem eru í Vildarklúbbnum, safna punktum fyrir það eitt að vera í viðskiptum og eykst punktasöfnunin eftir umfangi og fjölbreytileika viðskipta. Þannig geta viðskiptavinir
séð punkta sína vaxa bara fyrir það eitt að vera í góðum viðskiptum
við Glitni.
„Það eru til margvíslegar leiðir til að safna Glitnispunktum en
þú þarft í rauninni ekki að gera neitt aukalega, nema að sjálfsögðu
að vera viðskiptavinur Glitnis og skrá þig í klúbbinn,“ segir Ragnar
Már Vilhjálmsson, umsjónarmaður Vildarklúbbsins á markaðs- og
sölusviði. „Síðan fer það bara eftir umfangi og fjölbreytileika við-
skiptanna við okkur hvað þú færð mikið af Glitnispunktum í
hverjum mánuði.“
Einfalt að safna Ragnar Már útskýrir að einfalt er að safna Glitnis-
punktunum. Til dæmis fá menn punkta fyrir kreditkortanotkun,
bílalán, eignastýringu, sparnað og tryggingar í Stofni Sjóvár. „Þetta
er bara byrjunin því síðan fara viðskiptavinir að fá punkta fyrir
ýmislegt sem tengist bankaþjónustu. Fyrst og fremst er þetta nánast
fyrirhafnarlaus ávinningur. Við erum að endurgreiða viðskiptavinum
fyrir það að eiga viðskipti við okkur, og því meiri sem viðskiptin eru,
því fleiri Glitnispunkta fá þeir. Punktunum er síðan auðvelt að breyta
í hreint virði með ýmsu móti.“
Hentug innlausnarform Glitnispunkta Þegar að er gáð má
sjá að Glitnispunktana er hægt að taka út í peningum, sparnaði
eða ferðafríðindum svo eitthvað sé nefnt, nánast hvenær sem er.
„Kreditkortanotendur þekkja vel ferðafríðindi á borð við ferðaávísun
MasterCard og Vildarpunkta,“ segir Ragnar Már. „Glitnispunktarnir
safnast með sams konar hætti og ferðaávísun og Vildarpunktar en
þó í mun meira mæli þar sem kreditkortanotkun er aðeins eitt söfn-
unarformið í Vildarklúbbnum okkar. Síðan bætast við punktar fyrir
annars konar bankaviðskipti. Þannig getur heildarpunktasöfnun
orðið ansi há.“
Punktum breytt í hreinan ávinning Á vef Glitnis má sjá dæmi
um punktasöfnun viðskiptavina og þar sést að það ætti að vera til-
tölulega auðvelt að safna 50 til 60 þúsund punktum á ári.
En hversu mikils virði eru Glitnispunktarnir?
„Það er vissulega góð spurning en í sannleika sagt þá er ekki
auðvelt að svara henni af mikilli nákvæmni. Ég get sagt þér hversu
mikils virði Glitnispunktarnir eru að lágmarki, en viðskiptavinir
munu ávallt geta fengið enn meira út úr punktunum sínum. Ef við
tökum dæmi um 50 þúsund punkta þá get ég sagt með nokkurri
vissu að verðmæti þeirra verður um 27 þúsund krónur ef þeir eru
teknir út með hreinni peningaúttekt. Hins vegar verður hægt að taka
út punktana með öðrum hagkvæmari hætti og mun verðmæti þeirra
ávallt verða breytilegt og háð samningum við samstarfsaðila okkar,
á meðan verðmæti peninga er hvorki umsemjanlegt né stjórnað af
Glitni. Fyrst um sinn verður til dæmis hægt að auka virði punktanna
í 32 þúsund króna ferðaávísun frá MasterCard og sambærilegt virði
Vildarpunkta Icelandair. En þegar samstarfsaðilar okkar bjóða við-
skiptavinum okkar enn betri kjör þá rennur það að sjálfsögðu beint
út í virði punktanna. Þannig verður virði þeirra ávallt breytilegt en að
lágmarki verður virði þeirra ávallt ljóst,“ segir Ragnar Már.
Fyrnast ekki Ólíkt öðrum fríðindasöfnunum sem við þekkjum hér-
lendis þá fyrnast Glitnispunktarnir ekki, svo lengi sem viðskiptavinir
eru í Vildarklúbbnum. Þannig er til dæmis hægt að safna punktum
yfir langan tíma og fara síðan í sannkallað draumaferðalag. „Það sem
gerir punktasöfnun Vildarklúbbsins sérstaka, fyrir utan fjölbreytileika
söfnunarinnar, er að viðskiptavinir þurfa ekki að ákveða fyrirfram í
hvað punktunum verður varið. Á meðan önnur fríðindi eru ákveðin
fyrirfram þegar valið er MasterCard eða VISA kreditkort, þá byrja
viðskiptavinir í Vildarklúbbnum á því að safna Glitnispunktum og
síðan er hægt að ákveða eftir á hvort þeim verði ráðstafað í ferða-
ávísun, Vildarpunkta eða eitthvað annað, svo sem endurgreiðslu. Allt
eftir hentugleika hvers og eins,“ segir Ragnar Már.
Glitnir borgar viðskiptavinum til baka með Glitnispunktum:
VIÐSKIPTAVINIR GETA
INNLEYST PUNKTANA MEÐ
MARGVÍSLEGUM HÆTTI
V ILDARKLÚBBUR GL ITN IS