Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 56
56 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
Stangveiðifélagið Lax-á ehf. var stofnað árið 1987 og verður haldið upp á 20 ára afmæli félagsins í haust. Lax-á hefur
um árabil verið einn stærsti seljandi veiðileyfa
á innlendum markaði og sömuleiðis hefur
félagið verið með mikil umsvif erlendis og
nægir í því sambandi að nefna að það leigir
veiðisvæði í löndum eins og Argentínu og
Rússlandi og hefur ítök víðar, s.s. í Noregi,
Skotlandi og á Írlandi.
„Við sjáum um sölu á veiðileyfum og
rekstur á 38 veiðisvæðum hér heima,“ segir
Stefán Sigurðsson, sölustjóri hjá Lax-á og
einn eigenda félagsins. „Um 8-10 manns
vinna á skrifstofu Lax-ár árið um kring en
á sumrin bætast fjórir starfsmenn í hópinn.
Að teknu tilliti til starfsmanna í veiðihúsum
og leiðsögumanna má segja að heildarstarfs-
mannafjöldinn yfir sumarið sé hátt í 100
manns.“
Flestar árnar að verða uppseldar
„Sala veiðileyfa hefur gengið mjög vel og nú
er svo komið að flestar árnar okkar eru að
verða uppseldar, þótt vissulega lumi maður
á veiðileyfum hér og þar,“ segir Stefán. Að
hans sögn hefur ásókn í laxveiðileyfi hér
heima aukist mikið á síðustu árum. Það megi
þakka auknum hagvexti og stærri og öflugri
fyrirtækjum.
„Hér áður fyrr keyptu einstaklingar,
jafnt innlendir sem erlendir, bestu leyfin,
en þróunin hefur verið í þá átt hin síðari
ár að sala veiðileyfa til íslenskra og erlendra
fyrirtækja hefur aukist mikið. Fleiri breyt-
ingar hafa orðið á kaupendahópnum og ég
L A X V E I Ð I
Mikill vöxtur í sölu veiðileyfa erlendis
Stefán Sigurðsson er sölustjóri hjá Lax-á
LAX-Á:
Stefán Sigurðsson er sölustjóri hjá Lax-á.