Frjáls verslun - 01.04.2007, Blaðsíða 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
sem hann mundi iðulega ekki hvar hann
hefði hitt þó að allir ávörpuðu hann með
nafni og myndu hvar og hvenær þeir hefðu
hitt hann. Browne var harður á að Chevalier
mætti með honum og hafði engan skilning á
vaxandi vanlíðan ástmannsins.
Málaferli og bitrar ásakanir Chevalier
reyndi að leita sér lækninga, allt kom fyrir
ekki og að lokum missti Browne þolinmæð-
ina, útvegaði honum íbúð heima í Kanada og
Chevalier varð aftur jafn slyppur og áður.
Chevalier reyndi að biðja Browne um pen-
inga en fékk enga áheyrn. Chevalier hafði þá
samband við Mail on Sunday og rakti sögu
sína. Blaðið neitar því að hafa greitt honum
fyrir, aðeins borgað kostnað fyrir hann án
þess að skilgreina það nánar. Áhugi blaðsins
beindist að stjórnarháttum Brownes og sam-
skiptunum við Blair og Brown.
Svona blaðamennska gengur þannig fyrir
sig að hálfum til tveimur sólarhringum áður
en blaðið kemur út er fórnarlambinu tilkynnt
hvað standi til að birta. Á föstudagskvöld
hringdi almannatengsladeild BP í Browne þar
sem hann var í fríi á Barbados og tilkynnti
honum hvað stæði til. Þungamiðja efnisins
væri annars vegar einkalíf Brownes, hins vegar
frásagnir af lifnaðarháttum hans og stjórnun.
Browne flaug heim á stundinni og á laug-
ardagskvöld hafði hann fengið sett lögbann
á birtinguna. Blaðið neyddist því til að fylla
eyðurnar með öðru efni og ekkert fréttist
„Mesti breski viðskiptajöfur sinnar kyn-
slóðar“ Sex dögum eftir þessi átök tilkynnti
Browne að hann hygðist flýta starfslokum
sínum hjá BP, það væri í þágu fyrirtækisins.
Við það tækifæri sagði Peter Sutherland,
stjórnarformaður BP, að Browne væri „mesti
breski viðskiptajöfur sinnar kynslóðar“ og
bætti við að Browne áliti það fyrirtækinu
í hag að flýta því að eftirmaður hans tæki
við.
Í kjölfar lögbannsins þurfti Browne að bera
vitni fyrir dómi sem hann gerði nokkrum
klukkustundum áður en Sutherland lofaði
Browne svo mjög. Við það tækifæri sagði
Browne að þeir Chevalier hefðu kynnst í
skemmtigarði í London og hann ekki vitað
að hann væri vændismaður. Hann talaði
um Chevalier sem tæpan karakter sem hefði
bæði drukkið og neytt eiturlyfja þó að lækna-
skýrslur sýndu síðan annað.
Þegar blaðið lagði fram upptöku á símtali
við starfsmann vændismannaumboðsins um
að Browne hefði upphaflega kynnst Chevalier
í gegnum umboðið og að Browne væri enn í
viðskiptum þar varð Browne að viðurkenna
að hafa logið. Skýring hans var að hann hefði
orðið miður sín yfir þessum upplýsingum því
að hann hefði alltaf reynt að halda einkalífi
sínu utan starfsins.
Í febrúar hafnaði dómari lögbanninu og
vítti um leið Browne harðlega fyrir að hafa
logið og eins fyrir að hafa reynt að eyðileggja
mannorð Chevaliers. Browne reyndi að fá
málinu áfrýjað en því var hafnað í apríl. Þar
með stóð dómurinn frá febrúar, lögbannið
var fellt úr gildi, hörð ummæli dómarans um
Browne voru birt og sama var um söguna. Þó
eru enn atriði sem blaðið fékk ekki að birta,
svo sem efni samræðnanna þegar Blair kom
í heimsókn en þó sagt að Blair hefði látið
hugann reika um lífið eftir stjórnmálastörfin.
Enn er óljóst hvort Browne verður dreginn
fyrir dóm fyrir lygar en ef það gerist gæti
hann átt fangelsisdóm yfir höfði sér.
Dreymdi um yfirtöku BP á Shell Mail on
Sunday birti síðan sögu Chevalier um líf
þeirra og samskipti og aðrir fjölmiðlar köfuðu
í sama brunn. Chevalier sagði að rétt eins og
orðrómur var um hefði Browne dreymt um að
BP keypti Shell, ætlaði að nýta sér veika stöðu
þess 2004. Browne hefði ekki talað um annað
á þeim tíma þau kaup sem hefðu skapað
stærsta fyrirtæki í heimi og áttu að verða kór-
ónan á sköpunarverki Brownes í BP.
BP hefur tilkynnt að frásagnir Chevaliers
af því hvernig Browne hafi farið með BP eins
og sitt einkafyrirtæki feli ekkert í sér sem
stangist á við reglur BP svo að ekki er búist
við að BP aðhafist neitt frekar í þeim efnum.
En Browne er ekki búinn að bíta úr nálinni
með eftirmál slyssins 2005.
Eftirmælin sem Browne hlaut í fjöl-
miðlum í kjölfar afhjúpananna voru að hann
væri dæmi um mann sem hefði hreykt sér
of hátt, talið sig hafinn yfir reglu og lög sem
giltu um aðra dauðlega menn. Saga hans
væri dæmi um þær hættur sem fylgdu því
að hafa mikil völd í langan tíma – og sýndi
að dramb væri falli næst.
Chevalier reyndi a› bi›ja Browne um peninga en fékk enga áheyrn. Chevalier haf›i �á sam-
band vi› Mail on Sunday og rakti sögu sína.