Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
S T J Ó R N U N
Howard Gardner
- Fjölgreindarkenningin
Howard Gardner (f. 1943)
er að öllum líkindum sá af
kenningakóngunum sem
er minnst þekktur meðal
stjórnenda hér á landi. Hann
er þekktari meðal þeirra sem
stunda menntarannsóknir
og þróun í skólastarfi. Sál-
fræðingurinn Gardner er pró-
fessor við Harvardháskóla. Ef
marka má útgáfur á bókum
hans, yfir 30 bækur og meira en 700 fræðigreinar, er
hann vaxandi meðal kenningakónganna og hann hefur
fengið mikla viðurkenningu fyrir störf sín víða um
heim. Á síðustu árum hefur hann hlotið athygli í stjórn-
unarheiminum fyrir kenningar sínar um stjórnendur
sem sögumenn. Þekktastur er Gardner hins vegar fyrir
fjölgreindarkenningu sem hann
birti í bókinni „Frames of Mind:
Theory of Multiple Intelligences“
(1983). Í þessari bók er því hafnað
að greind einstaklinga sé einvíð og
að greind sé hægt að mæla með
einföldu prófi.
Fræðilegt framlag Gardners er
tekið saman í bókinni „Develop-
ment and Education of the Mind:
Selected Readings“ (2005). Þar er m.a. fjallað um
inntakið í fjölgreindarkenningunni. Í stuttu máli er
það kenning Gardners að sérhver einstaklingur hafi 8
tiltölulega sjálfbær færnisvið þegar kemur að greind: a)
Tungumálafærni; b) tónlistargáfu; c) tilfinningagreind;
d) rökræna hugsun og reiknigetu; e) rýmisskynjun; f )
athafnatengdan lærdóm og verksvit; g) sköpunargetu;
og h) sjálfsþekkingu og færni við myndun tengsla.
Eins og dæmi eru um þá getur framsetningin á ofan-
greindum færnissviðum verið lítið eitt mismunandi
á milli bóka. Það er utan við tilgang þessarar stuttu
samantektar að gera grein fyrir slíkum mismun og
ræða hann. Meginmálið er að Howard Gardner hefur
markað djúp spor í fræðaheiminn og verk hans eru
lögð til grundvallar við fræðslu og starfsþróun í bæði
skólum og fyrirtækjum, ekki síst þegar kemur að því
að virkja fólk og ýta undir samskipti og tengsl á milli
einstaklinga.
Það má sjá hvernig verk Gardners eru í auknum
mæli farin að beinast að stjórnendum og leiðtogum í
fyrirtækjum. Dæmi um þetta er nýjasta bók hans, „Five
Minds for the Future“ (2007). Í bókinni er fjallað um
þá hugrænu getu sem kann að vera og verða mikilvæg
í stjórnun og forystu í atvinnulífinu. Hann nefnir eft-
irfarandi fimm flokka hugrænnar getu: a) (fag)menn-
taðan huga; b) lausnamiðaðan huga; c) skapandi huga;
d) réttsýnan huga; og e) siðmenntaðan huga.
Fjallað er um framlag Howards Gardners um stjórn-
endur sem sögumenn í bókinni „The Guru Guide:
The Best Ideas of the Top Management Thinkers“
(1998). Þar segir að lykillinn að forystuhlutverkinu
sé miðlun upplýsinga og að besti miðillinn sé að segja
eða skrifa sögur. Að vera góður sögumaður er mikil og
sérstök færni. Með því að rækta þá færni er stjórnandi
að verja tíma sínum vel. Gardner bendir á ýmis atriði
sem eru notadrjúg í bókinni „The Leading Minds“
(1995): Í fyrsta lagi að láta sögurnar fléttast inn í
og tengjast vangaveltum um sjálfsmynd einstaklinga.
Þetta er vegna þess að allir einstaklingar eru stöðugt að
leita svara við spurningum eins og: a) Hver er ég? b)
Hvaðan kem ég? c) Hvar á ég heima og hvers vegna? d)
Hvað vil ég með líf mitt? e) Hvaða þættir í lífinu skipta
máli og fegra tilveruna? Þetta eru tilvistarspurningar og
þær eru mikið notaðar. Annað grundvallaratriði sem
Gardner bendir á er að stjórnendur verða að passa í
fötin sín og vera samkvæmir sjálfum sér. Þriðja atriðið
er að stjórnendurnir er á sögumarkaði. Sagan og fram-
setningin verður að slá í gegn, hafa einhver sérkenni
án þess þó að vera of frábrugðin því sem viðtakendur
vænta. Sögunotkunin verður líka að hafa framvindu og
vera í takti við aðstæður. Síðasta ráðið í sambandi við
sögur er að þær séu ekki of flóknar. Bestu sögumeist-
ararnir ná athygli allra aldurshópa.
Nánari upplýsingar um Howard Gardner er að finna
á www.howardgardner.com.
Í stuttu máli er það
kenning Gardners að
sérhver einstaklingur
hafi 8 tiltölulega
sjálfbær færnisvið
þegar kemur að greind.
Howard Gardner.