Frjáls verslun - 01.04.2007, Síða 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
K
YN
N
IN
G
SUMARIÐ ER TÍMINN
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
76
14
0
5.
2
0
0
7
Fáðu þér
heitt vatn
í bústaðinn
fyrir 1. júlí
Heita vatnið eykur notagildi sumarhúsa til mikilla muna
fyrir alla fjölskylduna.
Orkuveita Reykjavíkur er stolt af því að geta nú boðið
sumarhúsaeigendum í Grímsnesi, Biskupstungum og
Munaðarnesi, þar sem dreifikerfi hefur nú þegar verið
lagt, að kaupa heitt vatn í bústaðinn á sérstöku
tilboðsverði á tengi- og notkunargjöldum fram til 1. júlí.
Ekki hika við að nýta þau lífsþægindi sem við getum
boðið þér og njóttu lífsins í sumarhúsinu.
Á vef okkar www.or.is/jaðarveitur má finna nánari upplýsingar
um þetta tilboð og veitusvæði okkar.
Þjónustuver Orkuveitunnar veitir einnig nánari upplýsingar í
síma 516 6100.
Talsverðar breytingar hafa átt sér stað víða í sumarhúsabyggðum. Bústaðirnir verða sífellt stærri og sumarhúsaeigendur gera æ meiri kröfur um að hafa í þeim séu öll helstu nútímaþægindi.
Heita vatnið er þar svo sannarlega ofarlega á lista, enda gjörbreytast
nýtingarmöguleikar bústaðanna með tilkomu heita vatnsins.
Við Íslendingar teljum heitt vatn til grunnþarfa okkar en gleymum
því oft að þessi orka telst til munaðar víða um heim. Orkuveita
Reykjavíkur hefur í mörg ár annast rekstur allnokkurra hitaveitna í
vinsælum sumarhúsabyggðum sunnan- og vestanlands og lagt mikið
upp úr því að kynna húseigendum kosti heita vatnsins. Margir líta
á heita pottinn sem punktinn yfir i-ið þegar kemur að þægindum í
sumarhúsinu, enda nýtist heitur pottur allri fjölskyldunni.
Pottur með heitu vatni eða rafmagnshituðu Þegar fjárfest er í
heitum potti stendur valið á milli potts sem nýtir heitt vatn og hins
sem nýtir kalt vatn sem hitað er upp með rafmagni. Helsti kosturinn
við potta sem nota hitaveituvatn er að vatnið er alltaf „nýtt“ í pott-
inum og þar fyrir utan er rekstrarkostnaðurinn lágur. Í rafmagns-
hitaða pottinum er hins vegar sama vatnið notað vikum og jafnvel
mánuðum saman. Til að hægt sé að nota sama vatnið í langan tíma
þarf allskyns hreinsi- og sóttvarnarefni, mæla þarf ástand vatnsins
reglulega og í pottinum verður að vera viðeigandi hreinsibúnaður.
Helsti kostur rafmagnspottsins er að hægt er að nota hann þar sem
hitaveitunnar nýtur ekki við.
Kostnaður heitra potta Þess misskilnings hefur lengi gætt að dýrara
sé að reka pott sem nýtir hitaveituvatn en rafmagnspott. Það er ekki
rétt. Hér á síðunni má sjá grófan samanburð á orkukostnaði heitu
Ómissandi
þægindi
í sumarhúsið
Orkuveita Reykjavíkur:
Umhirðu- og rekstrarkostnaður er ekki innifalinn í ofangreindum dæmum.
Mikilvægt er að hafa í huga að staðsetning og einangrun potta hefur einnig
áhrif á rekstrarkostnaðinn.
pottanna. Hafa ber í huga að sé pottur notaður reglulega, t.d. tvisvar
eða oftar í viku, ætti í flestum tilfellum að vera hagstæðara að hafa
sírennsli í hitaveitukynntum potti en fylla hann ekki og tæma við
hverja notkun. Ef potturinn er mikið notaður og standi hann lengi
opinn í senn er væntanlega mun ódýrara að reka hitaveitukyntan
pott en rafmagnskyntan, sérstaklega ef einangrunin er góð í þeim
fyrrnefnda.
Mjög mikilvægt er að fólk gæti fyllsta öryggis í umgengni heitu
pottanna. Þetta á ekki síst við um að fylgjast með hitastigi vatnsins og
hafa lokið alltaf á þegar pottur eru ekki í notkun. Sé þessa ekki gæt
getur fólk átt á hættu að slys verði á börnum og fullorðnum.
Orkuveitan veitir allar nauðsynlegar upplýsingar um hvernig best
er að standa að lögnum við bústaði og þeim búnaði sem nauðsyn-
legur er til þess að menn geti notið heita vatnsins áhyggjulausir. Ef
fólk vantar heitt vatn í sumarbústaðinn sinn ætti það hiklaust að hafa
samband við Orkuveitu Reykjavíkur ef hún kemur að rekstri hitaveit-
unnar í þeirri sumarhúsabyggð.
Forsendur útreikninga:
Í útreikningum er gert ráð fyrir öllum neðangreindum
aukabúnaði bæði í hitaveitu- og rafmagnskyntum pottum.
• 5-7 manna einangruð útisetlaug með einangruðu loki
• 1300 lítra pottur m.v. 39°C hitastig
• Rafhitari 3 kW hitar pott um 2°C/klst.
• Lýsing í potti 0,012 kW
• Varmatap m.v. 0,5°C/klst.
• Hringrásadæla 0,55 kW
• Útihiti 0 °C
• Vatnsnudd 1,20 kW
Skipt um vatn Notkun RafmagnHeitt vatn
1 skipti fylltur og tæmdur pottur1 skipti 591,00 kr 154,00 kr
3 mánaða fresti2 til 3 í viku 26.101 kr/ári 13.725 kr/ári
1 sinni í mánuði2 til 3 í viku 29.943 kr/ári 14.106 kr/ári
2 sinnum í mánuði2 til 3 í viku 35.706 kr/ári 14.677 kr/ári
Skipt um vatn fyrir hvert skipti2 til 3 í viku 61.477 kr/ári 16.024 kr/ári
2 sinnum í mánuði3 til 4 í viku 44.133 kr/ári 22.770 kr/ári
Það er sælt að sitja í heitum potti.