Frjáls verslun - 01.04.2007, Blaðsíða 106
106 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
SUMARIÐ ER TÍMINN
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
10
4
8
Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000
„Hvað er með Ásum?“
Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna.
Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta
Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings.
Laxárstöðvar í Aðaldal
Orka í iðrum jarðar!
Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir
frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og
orkuvinnslu.
Kröflustöð í Mývatnssveit
List í eigu Landsvirkjunar
Listaverk sem sjaldan hafa komið fyrir
almenningssjónir – mörg hver með áhugaverða
sögu sem tengist Landsvirkjun og orkumálum.
Ljósafossstöð við Sog
Kynnist Kárahnjúkavirkjun!
Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar
ásamt ferðamennsku og útivist norðan
Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en
haldið er upp á Fljótsdalsheiði.
Végarður í Fljótsdal
Líf í Þjórsárdal
Ómissandi viðkomustaður á leiðinni inn á
Sprengisand og í Veiðivötn.
Sultartangastöð ofan Þjórsárdals
Heimsókn í Húnaþing
Kynnið ykkur orkumál og starfsemi
Blöndustöðvar í starfsmannahúsi stöðvarinnar.
Blöndustöð, Húnaþingi
Kynnist okkur af eigin raun
Heimsækið Landsvirkjun í sumar.
Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Komdu í heimsókn í sumar!
Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir
um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu.
Íslensk orkumál og virkjanir – alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum
Fyrstu sýningar op
na 9. júní
Jafet S. Ólafsson, framkvæmdastjóri
Veigs, fór að stunda stangveiði um
tvítugt. Hann veiddi þá í fyrsta skipti í
Laxá í Aðaldal auk þess að kvænast
inn í fjölskyldu sem hafði lengi rekið
þar veiðiheimili og þjónað laxveiði-
mönnum.
„Fyrsti laxinn sem ég dró var með
tengdaföður mínum heitnum, Hermóði
Guðmundssyni í Árnesi, og það á báti
á veiðistað sem kallast Presthylur
en þar drukknuðu tveir prestar með
nokkurra ára millibili. Laxinn var stór,
eða 16 pund, og ég dró tvo aðra þetta
kvöld af svipaðri stærð.“
Stærsti laxinn, sem Jafet hefur
veitt, var 24 pund og hefur hann
aðstoðað við löndun á stærri löxum
sem sumir hverjir hafa verið allt að 27
pund.
„Það er svo margt sem er heillandi
við veiði,“ segir Jafet sem fer yfirleitt
fjórar veiðiferðir á sumrin. „Spennan,
glíman við þann stóra, félagsskapurinn
og svo náttúran. Laxá í Aðaldal er að
sjálfsögðu Laxá í Aðaldal þó að þar
hafi verið döpur veiði undanfarin ár.
Umhverfið, fuglalífið og vonin um þann
stóra á engan sinn líka í Laxá. Það
getur verið puð að veiða í ám eins og
Laxá í Aðaldal, vaðið er mikið og það
þarf að kasta langt. En veiðiþreyta er
einhver besta þreyta sem hægt er að
kjósa sér.“
Jafet S. Ólafsson. „Það er svo margt sem er heillandi við veiði. Spennan, glíman við þann stóra, félagsskapurinn og svo náttúran.“
Jafet S. Ólafsson:
Veiðiþreyta besta þreytan