Frjáls verslun - 01.04.2007, Blaðsíða 112
112 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
K
YN
N
IN
G
SUMARIÐ ER TÍMINN
Nýherji:
Á annað hundrað fyrirtækja nýta sér þann kost að úthýsa rekstri upplýsingakerfa sinna hjá Alrekstri Nýherja. Starfsemin hófst af fullum krafti fyrir þremur árum. Síðan hefur veltan
tvöfaldast og starfsemin er orðin enn öflugri,“ segir Gunnar Á.
Bjarnason, yfirmaður Alrekstrar Nýherja, en starfsmenn deildarinnar
eru 13 talsins.
Gunnar segir mikinn kost fyrir fyrirtæki sem
nýta sér Alrekstur að vita í upphafi árs hvað
þjónustan muni kosta, ólíkt því sem gerist séu
fyrirtækin með eigin tölvudeildir þar sem kostn-
aður er ófyrirsjáanlegur og síbreytilegur. Stjórn-
endur fyrirtækja hafa í auknum mæli áttað sig á
hagræðingunni sem fylgir því að úthýsa alfarið
tölvurekstri fyrirtækjanna, bæði útstöðvar og
miðlægan rekstur. Fyrir þjónustuna er greidd föst mánaðarleg upp-
hæð svo að ekki er von á neinum bakreikningum. Þetta er mjög mikil-
vægt þar sem rannsóknir sýna að við rekstur tölvudeilda er hlutfall
launa 63% af heildarkostnaði.
Mikil áhætta og sveiflur, bæði í fjárfestingu og rekstrarkostnaði,
geta fylgt því vilji fyrirtækin sjálft reka tölvudeildir og ekki má heldur
gleyma kröfum um menntun og fræðslu ef fyrirtæki á að fylgjast með
öllum breytingum á upplýsingatæknimarkaðinum. Hjá Alrekstri
Nýherja er öryggið í fyrirrúmi en tryggt er að alltaf sé notaður fyrsta
flokks búnaður, varnir séu fullkomnar og næg þekking sé fyrir hendi.
Sérfræðingar með mikla reynslu og þekkingu eru ætíð til taks og veita
persónulega þjónustu án nokkurs aukakostnaðar. „Augljóst hagræði
og öryggi og mikil þægindi fylgja því að úthýsa tölvurekstrinum,“
segir Gunnar.
Engar áhyggjur af fjárbindingu „Einn stór
kostur við að úthýsa tölvurekstrinum er að fyrir-
tæki þurfa ekki að fjárfesta í búnaði.Ekki þarf
að hafa áhyggur af fjárbindingu í miðlægum
búnaði né heldur að taka ákvörðun um hvað
eigi að kaupa, en til þess þarf sérfræðiþekkingu. Í
Alrekstri Nýherja er ljóst að fyrirtækin eru alltaf
með aðgang að bestu mögulegu kerfunum. Það eru okkar hagsmunir
að keyra kerfin í viðeigandi umhverfi, hvorki of litlu né of stóru.“
Fyrirtækin sem nýta sér hýsingu hjá Alrekstri Nýherja eru mis-
stór. Hjá því minnsta er aðeins einn starfsmaður en 400 manns hjá
því stærsta, Nýherja sjálfum. „Við náum yfir allan skalann,“ segir
Gunnar. „Í grunninn þurfa allir sömu þjónustu, hvort sem starfs-
menn eru fáir eða margir og við hjá Alrekstri lögum tölvureksturinn
að þörfum hvers og eins.“
Öryggi og sparnaður fylgja
úthýsingu hjá Nýherja
Hjá Alrekstri Nýherja
eru menn alltaf reiðu-
búnir þurfi viðskipta-
vinur á aðstoð að halda.
Gunnar Á. Bjarnason, yfirmaður Alrekstrar Nýherja.
Myndin að ofan sýnir á einfaldan hátt
að kostnaður er óreglulegur þegar
menn eru með eigin tölvurekstur,
en fyrirséður og jafnvel 10-30% lægri
með úthýsingu og föstu gjaldi.