Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 120
120 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
D
ie Hard myndirnar þrjár, Die Hard (1988), Die Hard 2:
Die Harder (1990) og Die Hard: With a Vengeance (1995)
hafa löngum haldið nafni Bruce Willis á lofti. Í mynd-
unum leikur hann hinn harðsvíraða lögreglumann John
McClane. Það sem gert hefur McClane eftirminnilegri en
margar aðrar hasarmyndahetjur er að hann er breyskur maður, sem
hefur ekki átt láni að fagna í einkalífinu, drekkur of mikið og á erfitt
með að samlagast. Margir fundu í John McClane nútímahetju sem
ekki aðeins berst einn síns liðs við hryðjuverkamenn heldur hefur
blendnar tilfinningar sem flestir skilja. John McClane er venjulegur
maður sem býr yfir miklum krafti þegar á reynir.
Bruce Willis túlkaði McClane sérlega vel og kemur ekki á óvart að
hann hafi verið tilbúinn að leika í fjórðu myndinni. Willis er orðinn
52 ára gamall og hvort hann hafi enn þann kraft til að takast á við
hlutverkið á síðan eftir að koma í ljós. Í Die Hard 4 (ef ekki verða
gerðar breytingar á síðustu stundu þá mun myndin heita Live Free or
Die Hard í Bandaríkjunum en Die Hard 4 eða Die Hard 4.0 á alþjóð-
legum vettvangi) á McClane í höggi við hryðjuverkahóp sem ætlar
sér yfirráð í Bandaríkjunum í gegnum tölvukerfi sem þeir hertaka og
geta þar með slökkt á vörnum Bandaríkjanna. Verðugt verkefni fyrir
John McClane sem er hættur í lögreglunni en starfar hjá ríkinu í upp-
byggingu heimavarna. Eins og í fyrri myndunum er einnig áhersla á
mannlega þáttinn. Lífið hefur ekki leikið við John McClane, hann
er óvirkur alkóhólisti sem búinn er að fara nokkrum sinnum í með-
ferð og nú er dóttir hans Lucy orðin tvítug og kemur mikið við sögu
í myndinni. Jessica Simpson, Paris Hilton og Britney Spears höfðu
víst allar áhuga á að leika Lucy, en fyrir valinu varð hin óþekkta Mary
Elizabeth Winstead.
TEXTI: HILMAR KARLSSON
KVIKMYNDIR
BRUCE WILLIS
ENN Í ÁTÖKUM
VIÐ HRYÐJU-
VERKAMENN
DIE HARD 4:
Hárprúður hefur Bruce Willis
aldrei verið, en var þó með
hár í fyrri Die Hard myndunum.
Hann reri á örugg mið í fjórðu
myndinni og fannst skynsam-
legra að vera alveg sköllóttur
heldur en hálfsköllóttur.