Frjáls verslun - 01.04.2007, Side 127
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 127
FÓLK
N1 hf. varð til við sam-runa Olíufélagsins,
Bílanausts, Ísdekks ásamt fleiri
félögum í apríl 2007 og er eitt
stærsta verslunar- og þjónustu
fyrir tæki landsins. Hlöðver Sig-
urðsson er deildar stjóri hjólbarða-
þjónustu hjá N1 og hefur hann
aðsetur að Bíldshöfða í Reykjavík.
„Ég hóf störf hjá fyrirtækinu fyrir
einu ári síðan, hafði áður stýrt
Sólningu í Keflavík þar sem ég
bý og hafði verið hjá því fyrirtæki
í 25 ár, framkvæmdastjóri síð-
ustu tíu árin. Þegar svo eigendur
Bílanausts keyptu Olíufélagið var
mér boðið að taka við hjólbarða-
þjónustunni, þ.e. Ísdekki, sem er
í eigu sömu aðila. Óhætt er að
segja að allt hafi verið á fleygiferð
þann tíma sem ég hef starfað
hér. Mikil vinna lá í sameining-
unni og tók ég þátt í þeirri vinnu
ásamt mörgum öðrum og í dag er
N1 alhliða fyrirtæki sem þjónar
bílaeigandanum ásamt að vera
með neysluvörur.“
Vinna Hlöðvers felst í að stýra
innkaupa- og sölumálum í hjól-
barðaþjónustunni sem er sú lang-
stærsta á landinu og segir hann
veltu deildarinnar hafa verið um
einn milljarður á síðasta ári. „Við
skilgreinum okkur sem heildsala
á dekkjum og vörum tengdum
þeim. Í eigu N1 eru mörg hjól-
barðaverkstæði sem við seljum
vörur okkar til en einnig seljum
við til fjölda annarra hjólbarða-
verkstæða á höfuðborgarsvæðinu
og landsbyggðinni. Þetta er gef-
andi og skemmtileg vinna.“
Hlöðver hefur alla tíð búið í
Keflavík og alltaf unnið á heima-
slóðum þar til hann tók við starfi
sínu hjá N1: „Það voru nokkur
viðbrigði að þurfa að keyra til
Reykjavíkur á hverjum degi, en
það venst og eftir tvöföldun á
Reykjanesbrautinni að hluta er
það auðveldara og verður enn
auðveldara eftir því sem tvöföld-
unin lengist.“
Eiginkona Hlöðvers er Þóra
B. Karlsdóttir ferðamálafræð-
ingur sem starfar hjá SBK í
Keflavík og eiga þau tvö börn.
„Eftir að ég hafði tekið stúd-
entspróf frá MR 1975 fór ég í
Háskóla Íslands og var eitt og
hálft ár í efnafræði, en ákvað að
taka mér hlé frá námi og liðu 25
ár þar til ég fór aftur í nám, þá
í viðskiptafræði við Háskólann
á Akureyri. Námið stundaði ég
með fullri vinnu og útskrifaðist
2004. Það má segja að námið
hafi komið í kjölfar þess að ég
var farinn að huga mér til hreyf-
ings með atvinnu. Námið gaf
mér aukin tækifæri og nýt ég
þess í dag að vera með 25 ára
reynslu í dekkjabransanum auk
þess að vera tiltölulega nýútskrif-
aður viðskiptafræðingur.“
Þegar kemur að áhugamálum
segir Hlöðver að ferðalög hafi
fjölskyldan lengi stundað bæði
innanlands og utan og nú sé
verið prófa golfið: „Ég hafði
fiktað við golfið fyrir nokkrum
árum en eftir að ég fékk golfsett í
jólagjöf var mér ekki til setunnar
boðið, enda fín aðstaða til að
stunda golf á Suðurnesjum og ég
er þegar kominn með kennara.“
Hlöðver segir að í sumar sé
áformað að fara til Spánar síð-
ustu vikuna í ágúst og fram í
september. „Við ætlum að vera
eina viku í Barcelona og aðra á
sólarströnd.“
Hlöðver Sigurðsson:
„Við skilgreinum
okkur sem heildsala
á dekkjum og vörum
tengdum þeim.“
deildarstjóri hjá N1
HLÖÐVER SIGURÐSSON
Nafn: Hlöðver Sigurðsson.
Fæðingarstaður: Keflavík,
24. mars 1955.
Foreldrar: Sigurður
Jóhannsson og Dagný
Halldórsdóttir.
Maki: Þóra B. Karlsdóttir.
Börn: Ellert, 25 ára, Katla,
16 ára.
Menntun: Viðskiptafræð-
ingur frá Háskólanum á
Akureyri.