Frjáls verslun - 01.07.2009, Qupperneq 13
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 13
Fyrst þetta ...
Auður Capital flutti á dögunum í nýtt hús-
næði að Borgartúni 29 og þann 09.09.09.
bauð Auður viðskiptavinum og samstarfs-
aðilum í heimsókn. „Við ætlum að fagna
komandi vetri, bretta upp ermar og taka
þátt í að græða Ísland,“ sögðu þær Halla
Tómasdóttir, og Kristín Pétursdóttir stofn-
endur Auðar. Heimilistónar sáu um að
útdeila jákvæðum tilfinningum og skapa
heimilislegan blæ.
Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, og Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður.
Auður Capital
í nýtt húsnæði
w
www.bgt.is | sími 533 5000
R Æ S T I N G A L A U S N I R
FYRIR FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
S ím i 533 5000 • www.bgt . i s
Leiðréttingar vegna Tekjublaðs
Þær Halldóra
Geirharðsdóttir
og Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, í
Heimilistónum,
slóu á létta
strengi.
Nokkrar alvarlegar villur voru í síð-
asta tölublaði Frjálsrar verslunar,
Tekjublaðinu. Frjáls ferslun biður
hlutaðeigandi afsökunar á þessum
villum. Um mannleg mistök var að
ræða í innslætti. Tekjur Gunnars Más
Sigurfinnssonar, framkvæmdastjóra
Icelandair Cargo, voru gefnar upp
margfalt meiri en þær voru á árinu
2008. Sambærileg mistök urðu vegna
tekna Brynju Guðmundsdóttur. Það
sama má segja um tekjur Kristleifs
Kristjánssonar, læknis og forstöðu-
manns hjá ÍE, og Hauks Valdimarssonar
læknis. Einnig var um innsláttarvillu
að ræða vegna ofáætlaðra tekna Jóns
R. Kristjánssonar, framkvæmdastjóra
Manna og músa, Páls Harðarsonar,
aðstoðarforstjóra Kauphallarinnar
og Magnúsar Kristins Jónssonar hjá
Landsbankanum. Ritstjóri áréttar hér
með afsökunarbeiðni blaðsins.
-JGH