Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Qupperneq 33

Frjáls verslun - 01.07.2009, Qupperneq 33
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 33 sprotafyrirtæki hafa verið verið nátengd nýsköpunarumræð-unni á Íslandi; þetta eru fyrirtæki sem bjóða einhverjar nýj-ungar í vöru og þjónustu. Sú skilgreining er reyndar talsvert þrengri en sú sem austurríski hagfræðingurinn Schumpeter stakk upp á þar sem hann talaði einnig um nýsköpun hvað varðar til dæmis ferla, markaði og skipulag fyrirtækja. Nýsköpun nýrra fyrirtækja átti svo að skapa skapandi eyðileggingu, þ.e. ryðja gömlum fyrirtækjum út af markaðinum og breyta því hvaða fyrirtæki sigra í samkeppn- inni. Reyndar má geta þess í þessu samhengi að Schumpeter leit á kreppur sem eðlilega efnahagssveiflu sem gerir skapandi eyðilegg- ingu kleift að eiga sér stað. Nýsköpun og nýnæmi hafa verið miklir vandræðagemlingar þar sem ekki er alltaf gott að sjá hvað er raunverulega nýstárlegt þó að oft sé auðvelt að sjá hvað er greinileg eftiröpun á því sem fyrir er. Stundum er líka það sem virðist vera nýsköpun lítið annað en gamalt vín á nýjum belgjum, ekki þó svo að skilja að umbúðir geti ekki falið í sér nýsköpun. Þessi umræða um nýsköpun hefur að vissu leyti leitt umræðu um sprotafyrirtæki á villi- götur enda er ekki fylgni á milli aukins nýnæmis og árangurs fyr- irtækis. Oft er frekar um að ræða að þegar mikið nýnæmi er í nýsköp- uninni, er markaðurinn ekki tilbúinn til að meðtaka hana eða ekki tilbúinn að borga fyrir hana af því að hún er of dýr. Reynsluboltar í viðskiptum myndu benda á að í stað þess að einblína á nýnæmi sem slíkt er miklu skynsamlegra að finna frumlegan flöt á því sem þegar hefur sannað sig á markaðinum, að frumleg eftirlíking sé mun líklegri til árangurs en nýsköpun. Róttæk nýsköpun sem viðskiptahugmynd virðist líka á undanhaldi í fræðaumræðunni. Seinni tíma umræða um frumkvöðlafyrirtæki sýnir líka sprota- fyrirtæki í öðru ljósi en nýsköpunarljósinu. Þar er áherslan fyrst og fremst á vöxt sem samsvarar reyndar myndlíkingu sprota miklu betur en nýsköpun þar sem framtíð sprotans er fyrst og fremst að vaxa en ekki að verða glæný gróðurtegund. Vaxtaráherslan er að vissu leyti afleiðing af rannsóknum bandaríska hagfræðingsins David Birch á atvinnusköpun smáfyrirtækja en hann komst að því að það væru í raun fáein ört vaxandi fyrirtæki sem skapa flest störf. Hann kallaði þessi fyrirtæki gasellur. Þetta rímar við viðskiptafræðilega umræðu, sem snýr að rekstri og uppbyggingu fyrirtækja, þar sem frumkvöðlaskóli stefnumótunar- fræða, eins og Henry Mintzberg lýsir honum, snýst fyrst og fremst um að finna tækifæri, skapa verðmæti fyrir viðskiptavini og vöxt fyrirtækja. Verðmætasköpunin snýst um þarfir og vænt- ingar neytandans en í sjálfu sér ekki um hversu nýstárlegir hlutir eru. Þetta tvennt helst þó oft í hendur. Birch komst að því að þessar gasellur sem skapa störfin voru ekki endilega nýsköp- unarfyrirtæki heldur voru það stefnumótandi ákvarðanir og metnaður stjórnenda sem réðu meiru um vöxt fyrirtækja. Aukin áhersla hefur verið á vaxtarþátt sprota- fyrirtækja á undanförnum árum, ekki síst vegna þess að vinsælasta leiðin til að verðmeta fyrir- tæki er að reikna framtíðarsjóðstreymi til núvirðis. Engu að síður er enn rík áhersla á nýsköpunarþáttinn og mætti kannski segja að hann sé nauðsynlegur en ekki nægjanlegur fyrir sprotafyrirtæki en hið sama mætti segja um vaxtarþáttinn. Það gerir hins vegar ekki starf þeirra sem eru að reyna að telja saman sprotafyrirtæki auðveldara, nema það útilokar öll fyrirtæki á fyrstu stigum þar sem þau hafa ekki enn náð að vaxa. Í sjálfu sér er það ágæt flokkun en hún missir marks í því samhengi sem umræða um sprotafyrirtæki þarf að vera, að snúast um möguleika fyrirtækja svo að viðskiptavinir og fjárfestar fái áhuga á þeim frekar en að tilgreina þau sem þegar hafa náð verulegum árangri. Það væri sprotaumræða áhættufjárfestingarsjóða sem væri umræða um hálfvaxin tré en ekki það sem er á leið upp úr jörðinni. vaxtaráherslan er að vissu leyti afleiðing af rannsóknum bandaríska hagfræðingsins david Birch á atvinnusköpun smáfyrirtækja en hann komst að því að það væru í raun fáein ört vaxandi fyrirtæki sem skapa flest störf. texti: dr. eyþór ívar jónsson sprotafyrir- tæki vaxa úr grasi spurningin um hvaða fyrirtæki séu sprotafyrirtæki er ein af þessum spurningum sem erfitt er að svara og líklega breytist svarið með tíð og tíðaranda. Upprunalega skilgrein- ingin endurspeglar hugmyndir austurríska hagfræðingsins schumpeters um að tæki frumkvöðulsins sé nýsköpun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.