Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 35
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 35
Auðvelt að ímynda sér spennumynd þar sem tæki frá Hafmynd kemur við sögu. Kafbátur, mannaður gervi-greindu vélmenni, skimar yfir hafsbotninn og skráir hjá sér
allt grunsamlegt. Sjóherir nokkurra landa eru meðal kaupenda og
strangt til tekið er það sem hér fer á eftir hernaðarleyndarmál.
Kafbáturinn heitir GAVIA og leit fyrst dagsins ljós árið 1999.
Þremur árum fyrr hafði Hjalti Harðarson verkfræðingur byrjað að
hanna sjálfvirkan kafbát til að leysa verkefni sem annars eru unnin
af köfurum eða jafnvel úr mönnuðum kafbátum og voru stundum
óframkvæmanleg vegna kostnaðar.
Síðan hefur tækið þróast á ýmsa lund. Tölvutækni hefur fleygt
fram. Gervigreind var til dæmis á þeim tíma vart meira en kenning
um eitthvað sem tölvur gætu gert í framtíðinni. Núna er gervigreind
nauðsynlegur þáttur í stýrikerfum margra verkfæra.
Þar á meðal eru svona dvergkafbátar, sem verða að hafa vit fyrir
sjálfum sér meðan þeir eru í hafdjúpunum. Þar er til dæmis ekkert
GPS-leiðakerfi að styðjast við eins og á landi. Kafbáturinn hefur
bara upphafspunktinn í fjörunni að miða við. Eftur það verður
hann að rata sjálfur. Og hann sér með skynjurum, skráir hjá sér allt
sem hann verður áskynja.
Stríð og friður
Júlíus Benediktsson hjá Hafmynd, sprotafyrirtæki sem síðustu
ár hefur unnið að þróun kafbátsins, segir að GAVIA komi að
notum við nánast alla vinnu neðansjávar – sama hvort það er
atvinnustarfsemi eða varnarmál. Raunar er
það svo að fyrirtækið verður að uppfylla
öryggiskröfur NATO enda er hluti verkefnanna
fyrir heri bandalagsríkjanna.
Mikilvæg verkefni eru líka við olíuvinnslu.
Kafbáturinn getur sinnt reglubundnu eftirliti
með olíuleiðslum neðansjávar, fundið grjót
sem lagst hefur upp að leiðslunum og rof í
sjávarbotninum undir þeim.
Síðustu þrjú ár hefur endurhönnuð gerð af bátnum verið til sölu.
Báturinn er ekki stærri en svo að tveir menn geta borið hann. Síðstu
ár hafa rafhlöður þróast mikið og nýjar gerðir af skynjurum hafa
komið fram. Því er alltaf hægt að koma meiru og meiru fyrir í þessu
litla verkfæri.
Báturinn er settur saman á Íslandi en rafmagnshlutirnir í hann
eru að mestu leyti keyptir frá erlendum framleiðendum. Allir
málmhlutir eru smíðaðir á Íslandi. Júlíus segir það vanda fyrir
sprotafyrirtæki eins og Hafmynd að málmtækni hefur verið vanrækt
á Íslandi síðustu ár. Á Íslandi eru til góðir málm- og rennismiðir en
það er skortur á þeim.
Það er líka hörð samkeppni í greininni. Júlíus segir að nú séu
einkum þrjú fyrirtæki sem bjóði lausnir á þessu sviði. Hafmynd
reynir að skapa sér sérstöðu með því að aðlaga framleiðsluna
sérþörfum hvers viðskiptavinar.
Engin lán að fá
Til þessa hefur Hafmynd verið fjármögnuð af eigin fé. Fyrirgreiðsla
hjá bönkum hefur verið þung frá árinu 2007 og erfitt að fjármagna
framleiðsluverkefni. Núna er íslenska
bankakerfið hrunið og lítið sem ekkert lánsfé á
lausu þess vegna.
„Staða banka er mikið vandamál fyrir
okkur,“ segir Júlíus. „Í öðrum löndum verðum
við varir við mikið vantraust á íslensku bankana
og íslenskan efnahag. Það þýðir lítið að bjóða
upp á íslenska bankaábyrgð. Hún verður að
koma frá erlendum banka fyrir milligöngu
Seðlabankans.“
Hins vegar er óneitanlega kostur að gengisfall krónunnar hefur
aukið tekjurnar mikið í krónum talið.
„Það var ekki vænlegt að standa í framleiðslu hér innanlands
meðan gengið var hátt. Nú hefur það snúist við,“ segir Júlíus.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er stór hluthafi í Hafmynd og
kom þar fyrst inn árið 2003. Það var mikilvæg hjálp við að láta
hugmyndina vaxa úr sprota og yfir í framleiðslufyrirtæki.
Júlíus segir að opinberir sjóðir gegni þarna mikilvægu hlutverki
en aðild þeirra verði líka að fylgja þekking og kröfur um hvernig
eigi að nota peningana.
„Það mikilvægasta í sprotafyrirtæki er að hafa áætlun um hvert
menn ætla,“ segir Júlíus.
„Það var ekki vænlegt
að standa í framleiðslu
hér innanlands meðan
gengið var hátt. Nú
hefur það snúist við.“
Júlíus Benediktsson, framkvæmdastjóri hjá kafbátafyrirtækinu Hafmynd:
frAmleiðslAn
er leyndArmál
Júlíus Benediktsson framkvæmdastjóri hjá Hafmynd.