Frjáls verslun - 01.07.2009, Qupperneq 60
60 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
Aðalheiður Héðinsdóttir og eiginmaður hennar, eiríkur Hilmarsson, stofnuðu kaffitár fyrir
nítján árum. núna rekur fyrirtækið kaffibrennslu og átta kaffihús. Fyrirtækið hefur vaxið
20 til 30% á ári frá því að það var stofnað og velti á síðastliðnu ári um 710 milljónum.
TexTi: vilmundur hansen • Mynd: geir ólafsson
aðalHEiður
Í kaFFitári
a ðalheiður Héðinsdóttir, sem á og rekur Kaffitár, ásamt eiginmanni sínum Eiríki Hilmarssyni, er fædd í Keflavík 23. apríl árið 1958.
Hún er dóttir hjónanna Bergþóru Guðlaugar
Bergþórsdóttir matráðskonu og Héðins
Skarphéðinssonar trésmiðs sem rak eigið
trésmíðaverkstæði í Njarðvíkum. Aðalheiður
á tvö systkin, eldri systur, Kristjönu Birnu, og
yngri bróður, Skarphéðin.
„Mér leið afskaplega vel í Keflavík sem
barni og það var gott að alast þar upp. Ég
var þar í barna- og gagnfræðaskóla og að
lokum í fjölbraut og kláraði tvö ár áður en ég
flutti til Reykjavíkur. Ég og maðurinn minn
kynntumst á fyrsta ári í barnaskóla, vorum
saman í bekk í mörg ár og urðum svo par
sautján ára og við erum enn hamingjusamlega
gift,“ segir Aðalheiður.
Eiríkur starfar sem framkvæmdastjóri
Vísindagarða Háskóla Íslands og
forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar
Háskóla Íslands. Hjónin eiga þrjú börn sem
heita Andrea, 29 ára, nemi í rekstrarverkfræði
við Háskólann í Reykjavík, Héðin, sem
er 23 ára ljósmyndari og kaffibarþjónn,
og Bergþóru, sem er tuttugu og eins árs
og stafar sem kaffibarþjónn. Auk þess eiga
þau eitt barnabarn sem heitir Eiríka Ýr
Sigurðardóttir.
Fóstra að mennt
„Á æskuárum mínum í Keflavík störfuðu
vel flestar konur heima og karlarnir unnu
myrkranna á milli við að koma upp húsi og
hafa í og á fjölskylduna. Það þekktust allir
í bænum og samfélagið var gott. Á sumrin
passaði ég börn og vann í fiski þegar það var
hægt enda mun betur borgað en að passa.
Þegar ég hafði aldur til fór ég að vinna
í mötuneytinu hjá hernum uppi á velli.
Eftir tvö ár í Fjölbrautaskólanum í Keflavík
fluttum við Eiríkur til Reykjavíkur og ég
innritaðist í Fóstruskóla Íslands en hann
fékk vinnu hjá Unglingaheimili ríkisins.
Við eignuðumst fyrsta barnið þegar ég var
á síðasta ári í Fóstruskólanum. Eftir það
kenndum við hálfan vetur í afleysingum
við Skjöldólfsstaðaskóla í Jökuldal. Því næst
fluttum við aftur til Keflavíkur og Eiríkur
hóf nám í uppeldisfræði við Háskóla Íslands
og ég fór að vinna sem fóstra og varð síðan
forstöðukona leikskólans Tjarnasels í tvö og
hálft ár á meðan Eiríkur kláraði Háskólann,“
segir Aðalheiður.
Flutt til bandaríkjanna
„Árið 1984 fluttum við til Madison í Wiscons-
infylki í Bandaríkjunum þar sem Eiríkur fór
í framhaldsnám í stjórnunarfræðum en ég var
heimavinnandi húsmóðir. Við ákváðum þá að
nota tækifærið og eignast fleiri börn þar sem
ég var heima og gat sinnt þeim.
Dvölin í Bandaríkjunum var afskaplega
þægileg og góð að öllu leyti. Við kunnum
bæði vel við okkur í Madison, enda borgin
mjög fjölskylduvæn, en eftir fimm ára veru
þar, árið 1989, ákváðum við að flytja heim
aftur eftir að maðurinn minn hafði lokið
doktorsprófi.
Mér þótti mikill lúxus að fá að vera
húsmóðir á stúdentagarði í Madison. Við
áttum gamalt hús í Keflavík sem var svo illa
farið að það var nánast hægt að taka það í
nefið og svo kalt að blautar bleyjur frusu í
þvottabalanum á veturna. Á stúdentagarð
inum gat maður aftur á móti hringt í
húsvörðinn og hann kom og lagaði allt sem
bilaði. Ég eyddi því mestum mínum tíma í að
ala upp börnin, elda mat og fara á kaffihús og
það var þar sem ég lærði að meta gott kaffi.
Þrátt fyrir að líka dvölin vel í Banda
ríkjunum vildum við samt flytja heim aftur
þar sem börnin vantaði tengslin við afa sína
og ömmur. Okkur langaði líka bæði að fara
að vinna og koma okkur fyrir heima í Íslandi.
Mér bauðst að vísu vinna í kaffibransanum úti
en Ísland varð fyrir valinu. Eftir heimkomuna
fluttum við í húsið okkar í Keflavík,“ segir
Aðalheiður.
n æ r m y n d a F a ð a l H E i ð i H é ð i n s d ó t t u r Í k a F F i t á r i