Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 72

Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 72
72 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 K YN N IN G Dekur í vetur hljómar eflaust vel í eyrum flestra. Bláa Lónið er á meðal bestu heilsulinda heims en fyrr á þessu ári völdu lesendur hins virta tímarits Conde Nast Traveller Bláa Lónið sem eina af 10 bestu heilsulindum heims og hina bestu í flokki heilsulinda sem byggja á jarðvarma. Sjálfsagt hefur það ekki farið framhjá neinum að við Íslendingar nýtum okkur nú í auknum mæli afþreyingu hér innanlands. Bláa Lónið er þar engin undantekning og sem dæmi má nefna að heimsóknum Íslendinga í Bláa Lónið fjölgaði um 26 prósent í júlímánuði samanborið við sama mánuð á sl. ári. Og heimsókn í Bláa Lónið er ekki síðri að vetri til en að sumri. Notalegt undir norðurljósum Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri Bláa Lónsins, segir að margir Íslendingar vilji frekar heimsækja heilsulindina þegar það fer aðeins að hausta: „Margir Íslend- ingar leggja leið sína í Bláa Lónið þegar það fer að hausta og fram á vor fremur en yfir hásumarið, enda fátt notalegra en að slaka á í Bláa Lóninu á þessum árstíma og jafnvel undir norðurljósum þegar skyggja tekur. Við bjóðum nú mjög hagstæð vetrarkort sem veita ótakmarkaðan aðgang fram til 1. júní. Einstaklingskortin kosta 10.000 krónur og fjölskyldukortin 15.000 krónur. Íslendingar geta því látið fara vel um sig í kreppunnni og dekrað við sig í Bláa Lóninu í vetur.“ Einstakt samspil náttúru og vísinda. „Óhætt er að lýsa Bláa Lóninu sem afrakstri einstaks samspils náttúru og vísinda. Uppruni jarðsjávar Bláa Lónsins er á allt að tveggja kílómetra dýpi. Jarðsjór Bláa lónsins er tekinn beint úr borholum og leiddur í lögn að Bláa Lóninu. Fyrirtækið hefur ráðist í miklar fjárfestingar í tengslum við flutning á jarðsjónum og innan Bláa Lónsins hefur skapast mikil þekking er lýtur að nýtingu jarðsjávarins. Í lóninu eru 6 milljónir lítra af jarðsjó, sírennsli er í lónið og endurnýjast allur jarðsjórinn á um 40 klukkustundum. Bláa Lónið er þekkt fyrir lækningamátt og vísindarannsóknir sýna fram á góð áhrif virkra efna þess á húðina en kísillinn sem er svo einkennandi fyrir Bláa Lónið verndar og styrkir húðina á meðan þörungar vinna með áhrifaríkum hætti gegn öldrun húðarinnar. Kísilnudd, saltskrúbb og nærandi þörungameðferð eru á meðal þeirra meðferða sem eru í boði. Blue Lagoon meðferðirnar eru einnig í boði í nýju og glæsilegu Blue Lagoon spa í Hreyfingu – Glæsibæ.“ „Bláa Lónið er á meðal bestu heilsulinda heims en fyrr á þessu ári völdu lesendur hins virta tímarits Conde Nast Traveller Bláa Lónið sem eina af 10 bestu heilsulindum heims og hina bestu í flokki heilsulinda sem byggja á jarðvarma.“ Bláa Lónið Dekur í vetur Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri Bláa Lónsins. www.bluelagoon.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Lífsorka með nýtingu náttúruaflanna 2 fyrir 1 í Bláa lónið Gildir gegn framvísun miðans til 31. des. 2009 Lykill 1561

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.