Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 82

Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 K YN N iN G Fjölbreyttir áfangastaðir Þorvarður Guðlaugsson, svæðisstjóri íslenska sölusvæðisins hjá Icelandair, segir áfangastaðina skemmtilega og fjölbreytta: „Þeirra á meðal eru Kaupmannahöfn, Stokkhólmur, London, Manchester, Glasgow, Amsterdam, París og Frankfurt. Við höfum fjölgað flugferðum til bæði Manchester og Glasgow og verður flogið fjórum sinnum í viku á hvorn staðinn. Íslendingar vita sem er að tvær síðastnefndu borgirnar eru gullnáma fyrir þá sem vita fátt skemmtilegra en að versla enda finnst þar glæsileg merkjavara á ótrúlegu verði. Auk þess bjóða borgirnar upp á spennandi veitingastaði og líflega kráarstemmningu. Mikill áhugi er einnig fyrir haustferðum til New York, Boston og Orlando og svo nýja áfangastaðnum sem kom inn í myndina þann 22. júlí, stoltinu okkar, Seattle. Við erum síðan í samstarfi við Alaska Airlines um fargjöld áfram innanlands í Bandaríkjunum og Kanada í gegnum Seattle. Má nefna staði sem áhugavert er að heimsækja eins og Las Vegas, San Francisco, Los Angeles, Hawaii, Anchorage og Vancouver, á meðal fjölmargra annarra.“ Þakkargjörðarhátíð í Boston, fótboltafjör og gæða golfferðir „Vert er að minnast á frábæra Bostonferð undir leiðsögn Sólveigar Baldursdóttur, ritstjóra Gestgjafans, sem kynnir borgina og verslun þar á hagstæðu verði en útsölurnar í Boston byrja daginn eftir Þakkargjörðardaginn, þann 27. nóvember. Síðast komust færri að en vildu svo það er um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst. Icelandair býður líka upp á fótboltaferðir á heimaleiki West Ham og er í góðu samstarfi við ferðaskrifstofur sem selja fjölbreyttar fótbolta- og golfferðir. Vélarnar okkar eru búnar nýjum, þægi- legum sætum og um borð er skemmtikerfi (Inflight entertain- ment system) sem stytta fólki stundir meðan á flugferð stendur. Við bjóðum upp á pakkaferðir til allra áfangastaða okkar – flug og hótel. Einnig eru ýmsar sérferðir í boði, sjá netslóðina http://www.icelandair.is/offers-and-book- ings/book-packages/packages/item198160/ Serferdir/ „Mikill áhugi er einnig fyrir haustferðum til New York, Boston og Orlando og svo nýja áfangastaðnum sem kom inn í myndina þann 22. júlí, stoltinu okkar, Seattle.“ Icelandair Pakkaferðir til allra áfangastaða Þorvarður Guðlaugsson, svæðisstjóri íslenska sölusvæðisins hjá Icelandair.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.