Frjáls verslun - 01.07.2009, Qupperneq 83
haustið er tíminn
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 83
Saga Capital:
Leiðandi í skuldabréfaútgáfu
Aðgangur að lánsfé getur, við núverandi
aðstæður á Íslandi, hæglega verið það
sem skilur á milli feigs og ófeigs. Það
getur hins vegar verið þrautin þyngri fyrir
fyrirtæki og sveitarfélög að verða sér úti um
lán nú um stundir og skuldabréfaútgáfa
hefur nánast verið eini kosturinn þegar
kemur að fjármögnun. Á þeim markaði
hafa Markaðsviðskipti Saga Capital
verið með leiðandi stöðu en bankinn
hefur aflað alls um 12 milljarða króna í
frumútgáfu skuldabréfa í sjö útboðum.
Ómar Sigtryggsson er framkvæmdastjóri
Markaðsviðskipta:
,,Skuldabréfaútboð fyrirtækja og sveitar-
félaga hafa verið okkar aðalverkefni að undan-
förnu og gengið vel. Á undanförnum
mánuðum höfum við séð um skuldabréfa-
útgáfu fyrir stór sveitarfélög og fyrirtæki,
svo sem Kópavogsbæ, Farice, sem sér um
Danice-sæstrenginn milli
Íslands og Evrópu, Árborg,
Norðurþing, Fljótsdalshérað og Byggða-
stofnun. Fleiri slík verkefni eru á borðinu
hjá okkur og má til dæmis nefna að við
erum að stækka skuldabréfaflokk Kópa-
vogs.“
Að sögn Ómars er staðan í dag
einfaldlega sú að þó talið sé að nægir
peningar séu í bönkunum þá liggi
þeir peningar ekki á lausu sökum
efnahagskreppunnar. ,,Þess vegna eru
mörg fyrirtæki og sveitarfélög í þeirri
stöðu að þurfa að reiða sig á skuldabréf og
þar komum við inn í ferlið og sjáum um
skuldabréfaútgáfuna.“
Ómar bendir á að fyrir nokkrum
árum, þegar miklir peningar voru í
umferð í samfélaginu, hafi lífeyrissjóðir
og fjárfestingasjóðir fjárfest mikið í
skuldabréfum. Þegar kreppan skall á hafi
eigendur skuldabréfanna hins vegar þurft
að afskrifa mikið af þessum eignum.
Fjárfestar séu því skiljanlega varari
um sig í dag og nauðsynlegt sé að koma til
móts við það.
,,Við höfum tekið mið af ástandinu
og breytt okkar vinnureglum við útgáfu
skuldabréfa töluvert. Við gerum nú meiri
kröfur til útgefenda í upplýsingagjöf í
söluferlinu til að fjárfestar fái meiri og
nákvæmari upplýsingar. Lífeyrissjóðirnir
spila mjög mikilvægt hlutverk í þessu ferli
og við unnum því mjög náið með þeim til
að koma á stöðlum sem eru viðunandi bæði
fyrir lífeyrissjóðina og útgefendurna.“
Markaðsviðskipti Saga Capital eru
staðsett í Skógarhlíð í Reykjavík en höf-
uðstöðvar bankans eru á Akureyri. Fyrir
utan þjónustu Markaðsviðskipta og hefð-
bundna verðbréfamiðlun veitir Saga Capital
þjónustu á sviði fyrirtækjaráðgjafar og útlána
bæði til fyrirtækja og fagfjárfesta.
Ómar Sigtryggsson, framkvæmdastjóri Markaðsviðskipta Saga Capital.