Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 84

Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 84
K YN N IN G Skrifstofur búnar húsgögnum sem hönnuð eru af íslenskum arkitektum og framleidd af íslenskum húsgagnaframleiðendum eru svo sannarlega stolt hvers fyrirtækis. Fansa línan sem frumsýnd verður í byrjun október uppfyllir þessi skilyrði. Hönnuðurinn er Valdimar Harðarson og eruhúsgögninfram- leidd hjá Trésmiðju GKS fyrir Pennann sem selur Fansa-línuna. Framleiðsla á FANSA línuninni hófst fyrir tveimur árum síðan og nú í byrjun október verður kynnt ný viðbót við línuna sem ber heitið FANSA Plús. Þessi nýja lína er hönnuð og framleidd í takt við þarfir íslenskra fyrirtækja í dag, bæði þeirra sem eru að endurnýja og bæta við búnað sinn og hinna sem eru að koma sér fyrir í fyrsta sinn. Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðs- stjóri Pennans, segir að þarfir fyrirtækja hafi nokkuð breyst að undanförnu. Þörfin fyrir ódýrari lausnir hefur komið fram að und- anförnu en auk þess hefur ýmislegt breyst í búnaði fyrirtækjanna sem kallar á nýjar og ferskar lausnir. Tölvur voru til skamms tíma fyrirferðarmiklar en allur tölvubúnaður er nú orðinn nettari en áður og krefst þar af leiðandi ekki jafnstórra og sterklegra skrif- borða. Yfir aldarfjórðungs reynsla Valdimar Harðarson arkitekt, sem hannað hefur skrifstofuhúsgögn fyrir Pennann í yfir 25 ár, hefur haft þessar breytingar í huga við útfærslu nýju Fansa-línunnar sem hefur hlotið mikið lof fyrir fallegt útlit. Mikil áhersla er lögð á að allar einingar í Fansa-línunni falli vel saman og verður það til þess að möguleikar á uppröðun verða ótalmargir og alltaf jafnsmekklegir og hent- ugir, sama hvort skrifstofuhúsnæðið er lítið eða stórt. Ingibjörg Ásta segir að lesa megi ýmislegt út úr því hvernig skrifstofur fyrirtækja líti út og hvernig vali húsgagna sé háttað en þau eru hin sýnilega ímynd fyrirtækisins sem mætir viðskiptavininum. Um leið skipta þau máli fyrir vellíðan starfsmanna. Ef hús- gögnin henta starfseminni sem fram fer á skrifstofunni og hæfa starfsmönnunum, til dæmis hvað borðhæð og annað snertir, skapa þau þægilega og góða vinnuaðstöðu. „Ekki má heldur gleyma því að það er mikilvægt fyrir Pennann, sem leggur metnað í val á vörum sem hann býður viðskipta- vinum sínum, að með Fansa-línunni er hægt að bjóða upp á góða íslenska hönnun og framleiðslu. Hvort tveggja á upptök í íslensku þjóðfélagi þar sem boðleiðir eru stuttar. Þannig getum við miðlað hönnuði og framleiðanda upplýsingum sem koma frá neytandanum. Komi viðskiptavinirnir með ábendingar er ekkert einfaldara en koma þeim áleiðis til hönnuðarins sem getur haft þær í huga við hönnun og þróun hús- gagnanna í framtíðinni.“ Starfsfólk Penn- ans er síðan boðið og búið til þess að finna sérsniðnar lausnir fyrir viðskiptavini sem að henta hverju sinni. Penninn Fansa skrifstofulínan uppfyllir íslenskar þarfir Fansa-línuna má sjá í Pennanum Hallarmúla 4 og Hafnarstræti 91-93 á Akureyri. 84 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðsstjóri Pennans, og Sædís Guðmundsdóttir, rekstrar- stjóri húsgagnasviðs, í sýningarsal Pennans í Hallarmúla.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.