Frjáls verslun - 01.07.2009, Síða 85
Vinnuvernd er þjónustufyrirtæki sem sér-
hæfir sig á sviði vinnuverndar, heilsuverndar
og heilsueflingar. Þjónusta Vinnuverndar
miðar að því að aðstoða fyrirtæki og starfs-
menn þeirra við að bæta öryggi, líðan og
heilsufar á vinnustað og draga meðal annars
á þann hátt úr fjarvistum. Framkvæmda-
stjóri Vinnuverndar er Valgeir Sigurðsson.
„Tólf til fjórtán manna teymi lækna,
hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara, sál-
fræðinga, lýðheilsufræðings og vinnuvist-
fræðings sinnir fjölbreyttum verkefnum
Vinnuverndar,“ segir Valgeir. „Sem dæmi
um þjónustuþætti má nefna trúnaðarlækn-
isþjónustu, úttektir á vinnuaðstæðum,
vinnuvistfræðilega ráðgjöf, heilsufarsmæl-
ingar og heilsufarsmat, áhættumat, vinnu
við eineltismál, áfallahjálp, ýmiss konar
fræðslu, námskeið og margt fleira. Einnig
hafa sérfræðingar Vinnuverndar aðstoðað
fjölmörg fyrirtæki við að skipuleggja heilsu-
eflingu til lengri tíma.
Auk þess rekum við sérhæfða einingu
sem heitir Ferðavernd. Þar er veitt heilbrigð-
isráðgjöf og framkvæmdar bólusetningar
í tengslum við ferðalög. Þjónustan nýtist
einstaklingum, starfsmönnum fyrirtækja
og ýmiss konar hópum. Nú þegar fólk er
að velja áfangastaði þar sem verðlag er lágt
kallar það enn frekar á bólusetningar.“
Aldrei mikilvægara
Það er mat Valgeirs og starfsmanna Vinnu-
verndar að líklega hafi aldrei verið mik-
ilvægara en nú að fyrirtæki sinni vinnu- og
heilsuverndarstarfi. Starfsfólkið sé mesta
auðlind fyrirtækja og segja megi að það sé
lykilatriði að hlúa vel að því við uppbygg-
ingarstarfið sem framundan er.
„Vinnuverndarstarfið er líklega ódýrasta
ráðgjafarþjónusta sem völ er á. Það hefur
margvíslegan ávinning í för með sér og
hægt er að gera býsna margt fyrir lítið
fjármagn.
Verkefni sem ná beint til starfsmanna
og eru sýnileg á vinnustaðnum eru mjög
mikilvæg um þessar mundir. Það skiptir því
miklu máli að færa vinnuverndarstarfið enn
framar í forgangsröðina.“
Hvað er framundan?
Valgeir bætir við: „Framundan eru inflú-
ensubólusetningar á vinnustöðum sem við
höfum sinnt um nokkurt skeið. Mjög þægi-
legt er fyrir fyrirtæki að fá þessa þjónustu
til sín í stað þess að hver starfsmaður sæki
þjónustuna út fyrir vinnustaðinn.
Við höfum einnig mikið sinnt heilsufars-
mælingum á vinnustöðum og er alla jafna
mikil aðsókn í þá þjónustu á þessum árs-
tíma, enda hefur hún gefið góða raun. Hún
veitir gagnlegar upplýsingar fyrir starfsmenn
en skapar auk þess ákveðið aðhald og hvetur
fólk til ábyrgðar og aðgerða varðandi eigin
heilsu.“
Í lokin segir Valgeir Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri: „Mikilvægt er fyrir atvinnu-
lífið að til sé fyrirtæki hér á landi líkt og
Vinnuvernd enda eru áþekk fyrirtæki til víð-
ast hvar. Og þó ástandið sé ekki nægjanlega
gott í samfélaginu þá er bjart framundan og
Vinnuvernd er að stækka og eflast. Það ger-
ist hægar en áður en gerist samt!“
haustið er tíminn
Vinnuvernd
Vinnuverndarstarf líklega
ódýrasta ráðgjafaþjónustan
Valgeir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vinnuverndar.
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 85