Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
K
YN
N
IN
G
Í nýlegu tölublaði Business Week er varpað
fram spurningunni hvort bjartsýni gefi
samkeppnisforskot og er skemmst frá því að
segja að það er raunveruleg tenging á milli
þess hvort starfsmenn séu virkir (engaged)
og „bottom line“.
Vísað er í fyrirtækið Best Buy í Banda-
ríkjunum sem segir að 2% aukning í virkni
í einni af raftækjaverslunum sínum hafi
skilað að meðaltali allt að 100.000 dollurum
í ársveltu.
Skjaldbökuáhrifin
Unnur Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri og
eigandi: „Við vinnum með stjórnendum
fyrirtækja til að auka árangur með því að
efla hæfni starfsfólksins.
Starfsfólk hefur tilhneigingu til að draga
sig í hlé þegar óvissa og hræðsla ræður
ríkjum og því er það gríðarlega mikilvægur
eiginleiki fyrir stjórnandann að geta virkjað
starfsfólkið. Við getum öll séð fyrir okkur
afleiðingar þess ef fólk er hrætt við að tjá
skoðanir sínar, taka ákvarðanir, prófa nýjar
leiðir og hugsa hlutina upp á nýtt.
Við erum með mjög metnaðarfullar
lausnir sem miða að því að takast á við
þessar nýju áskoranir og bjóðum upp á
nýjungar eins og stjórnendaþjálfun fyrir
nýja stjórnendur, verslunarstjóraþjálfun,
söluakademíu, leiðtogaakademíu, fram-
haldssölunámskeið, þjónustuþjálfun fyrir
starfsfólk í framlínu og ekki má gleyma
framhaldi af hinu sívinsæla
Dale Carnegie námskeiði.
Við sérsníðum einnig
námskeið að þörfum hvers
fyrirtækis fyrir sig.“
Mikilvægast að veita inn-
blástur
„Leiðtogar eru önnum kafnir þessa dagana
að endurskipuleggja fyrirtæki, gera enn nýjar
áætlanir og eru meira og minna horfnir inn
í fundarherbergin til að leysa öll vandamálin
sem steðja að rekstri í dag og til að slökkva
alla eldana sem hafa kviknað.
Því miður er það ekki alveg í samræmi
við það sem starfsfólkið þarf á að halda
þessa dagana eins og könnun DTI
(department of trade and
industry) leiddi í ljós. Í
henni voru 1500 stjórnen-
dur spurðir hvaða eiginleika
þeir vildu helst sjá í sínum
leiðtogum. 55% svarenda
svöruðu að þeir veiti öðrum
innblástur.
Virkt starfsfólk afkastar meiru en óvirkt
og aflar því meiri tekna fyrir fyrirtækið. Það
er lengur hjá fyrirtækinu og er hliðhollri og
áreiðanlegri starfsmenn. Virkir starfsmenn
eiga góð samskipti við yfirmenn, skýr tjá-
skipti, þekkja styrkleika sína vel, hafa sterk
tengsl við samstarfsfólk og styðja samstarfs-
menn til frekari árangurs.“
Dale Carnegie
Hættum að bíða
– byrjum að framkvæma
Ráðgjafar, þjálfarar og starfsfólk Dale Carnegie.
„Ein mikilvægasta
áskorun leiðtoga
í dag er að virkja
starfsfólkið.“