Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 91

Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 91
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 91 Bryndís Hagan torfadóttir, fram- kvæmdastjóri sAs á Íslandi, hefur unnið hjá fyrirtækinu frá árinu 1970, bæði hér heima og erlendis, svo sem í danmörku, Grænlandi, Bretlandi og Eist- landi. Hún hefur í gegnum árin safnað uppskriftum í þeim fjölmörgu löndum sem hún hefur heimsótt starfs síns vegna og svo hér heima. Þetta vatt upp á sig og í dag á hún nokkrar matreiðslubækur með safninu í. Þess má geta að engin uppskrift ratar í það safn án þess að búið sé að prófa hana. Aðspurð um uppáhaldsrétti nefnir Bryndís villibráð, lambakjöt og fisk. Þegar hún er beðin um uppskrift segir hún að úr vöndu sé að ráða. „Allar uppskriftirnar eru margreyndar á heimilinu og vinsælar.“ Hér eru þó nokkrar: Uppskrift frá Grænlandi: HREINDÝRALÆRI 1 læri – u.þ.b. 3 1/2 kg sem ætti að vera nóg fyrir 8–10 manns. Fyrst er að marinera kjötið þegar búið er að fitu- og sina- hreinsa það. stingið í lærið negulnöglum á víð og dreif. Blandið saman 1 dl af góðri olífuolíu, 5 dl rauðvíni (hvítvín gengur líka alveg), salti, pipar, dálitlu rósmaríni, um það bil 1–2 msk. af einiberjum (úr morteli), mörðum hvítlauk, fínt rifnum sítrónuberki og þremur lárviðarlaufum. leggið kjötið í fat og hellið marineringunni yfir. Það þarf að snúa lærinu oft í henni í tvo sól- arhringa. lærið er sett í ofnskúffu og marineringunni hellt yfir að við- bættu köldu vatni svo að kjötið liggi í 2 cm vökva – marineringu og vatni. lærið er steikt í tvo tíma, fyrst við 225 gráður í háftíma, en fylgist með að það brúnist ekki um of. lækkið hitann í 180 og steikið áfram í 90 mínútur (athugið: lægri hiti ef notaður er blástursofn). Þó er mismunandi hversu rautt fólk vill hafa kjötið og því gott að nota kjötmæli og hafa steikina eins og hver vill. takið kjötið út og pakkið því vel inn í álpappir og þykk hand- klæði og látið það standa inn- pakkað í 30 mínútur. Gerið uppbakaða sósu og notið vökvann úr ofnskúffunni út í. Eins er gott að steikja helst villisveppi og setja út í sósuna. Bætið við rjóma og smá portvíni eftir smekk og meira kryddi ef fólki sýnist svo. með lærinu er borið fram það sem hver og einn vill af meðlæti. Oddný Sturludóttir, Kári Daníel og Margrét María á Ylströndinni. „Í raun má segja að ég hafi, ásamt börnunum sem eru fjögurra og fimm ára gömul, leikið erlendan ferðamann í Reykjavík.“ Sumarfríið: sumarleyfisparadísin reykjavík Oddný sturludóttir borgarfull- trúi varði bróðurpartinum af sumarfríinu í reykjavík og nágrenni. Hún bendir á að borgin hafi upp á margt að bjóða sem borgarbúar nýti sér of sjaldan. „Í raun má segja að ég hafi, ásamt börnunum sem eru fjögurra og fimm ára gömul, leikið erlendan ferðamann í reykjavík. við heimsóttum Árbæjarsafn og sáum mjaltir sem var börnunum eftirminnileg upplifun. Hjá móðurinni vakti hún upp nostalgískar minningar frá mýrunum þar sem hún var kaupakona að sumarlagi sem barn og unglingur. við heimsóttum nauthólsvík í tvígang, leigðum árabát og busluðum í sjónum. við syntum í nær öllum sundlaugum í reykjavík og nágrannasveitarfélögunum og kusum svo um þá bestu. niðurstöðunni höldum við fyrir okkur en samkeppnin var hörð.“ Oddný segir að eftirminnilegasta ferðin hafi verið tjaldútilega við Úlfljótsvatn. „Þetta er skáta- og fjölskylduparadís sem er örstutt frá reykjavík. Þar eru dásamlegar aðstæður fyrir börn á öllum aldri, þrautabraut, bátar af öllum stærðum og gerðum, klifurgrindur, veiðistangir, mínígolf og kastalar. Oft þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna ævintýri; þau leynast við hvert fótmál í reykjavík og nágrenni.“ Sælkeri mánaðarins uppskriftir víða að Bryndís Hagan Torfadóttir er sælkeri mánaðarins.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.