Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 95

Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 95
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 95 Bílar Þúsundkallinn nissan verður fyrstur af stóru bílaframleiðendunum til að koma með alvöru rafbíl á markaðinn; nissan leaf. Í byrjun ágúst kynnti nissan þennan bíl í nýjum höfuðstöðvum sínum í yokohama í Japan – en hann kemur á almennan markað í byrjun næsta árs. rafmótorinn sem knýr þennan fimm manna bíl áfram er 80 kW eða 107 gömul hestöfl. Það heyrist ekkert í honum – og hámarkshraðinn er um 150 kílómetrar á klukkustund. Það tekur rúma sex klukkutíma að fullhlaða bílinn, og hleðslan dugir í 160 kílómetra, en hraðhleðslan sem tekur um tíu mínútur kemur bílnum 50 kílómetra til viðbótar. Áætlaður rafmagnskostnaður á ári, að reka bílinn, er um 12.000 krónur, eða um þúsundkall á mánuði. Og engin mengun í kaupbæti. sannarlega bylting. jæja, gott hjá Þér stærstu og fínustu bílaverðlaunin í Bandaríkjunum, Car of the year, var á stóru árlegu bílasýningunni í detroit nýlega. Að þessu sinni var það Hyundai Genesis frá kóreu sem var kosinn bíll ársins. Þetta þykir á margan hátt merkilegt. kóreskur bíll að keppa við allan heiminn þegar þýskir framleiðendur hafa verið leiðandi í gæðum undanfarin ár og áratugi. Hinir bílarnir, sem komust í þriggja bíla úrslitin, voru hin nýja vW Jetta Gtd og Ford Flex. Genesis- bíllinn er í millistærðarflokki og fæst í tveimur útfærslum; venjulegur með skotti og ennfremur tveggja dyra coupe, fallegur bíll. Þess má geta að bíll ársins í evrópu 2009 var Opel insigna. fullkomnun Á arabísku þýðir orðið kamal fullkominn. Það er einmitt nafnið á nýjum jeppa/jepplingi sem Alfa romeo, ítalski framleiðandinn, kemur með á markaðinn í byrjun næsta árs. vélin er 3,2 lítra v6 og hestöflin eru 249,5. Þessi bíll táknar endurkomu Alfa romeos á bandaríska markaðinn, en hann hefur ekki verið þar í tæp tuttugu ár. til að ná fótfestu þar var talið nauðsynlegt að koma með alvöru jeppa. Alfa romeo kamal á að keppa við minni lúxusjeppa, eins og Audi Q5, mercedes Benz Glk, infiniti Ex og BmW x3. Þetta eru þær bifreiðar sem hvað mestar kröfur eru gerðar til. En fallegur er Alfa romeo kamal, næstum fullkominn er hann.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.