Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 96

Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 96
96 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 Ég hef starfað hjá Olís allar götur síðan ég var 14 ára gamall, á sumrin með skóla og síðan í fullu starfi. Þegar Óli Kr. Sigurðsson keypti Olís árið 1987 verða breytingar á mínum högum innan fyrirtækisins. Við Óli þekktumst, vorum báðir Þróttarar og hann var meðal annars fararstjóri í ferð sem ég fór með Þrótti til Danmerkur. Hann hafði strax samband við mig og tók mig inn í innkaupadeildina þar sem hann vildi gera umtalsverðar breytingar á innkaupum, kaupa beint, ekki vera með neina milliliði. Ég starfaði síðan við innkaup til ársins 2006 fyrst sem innkaupafulltrúi en frá árunum 1993–1997 sem innkaupastjóri. Var forstöðumaður þegar mér var boðið að taka við markaðssviði Olís í kjölfar skipulagsbreytinga á fyrirtækinu. Á þeim tímamótum varð meginhlutverk mitt að efla ímynd félagsins og stýra markaðssetningu á helstu vörumerkjum okkar sem eru Olís, ÓB og Ellingsen. Fljótlega bættist við nýjasta vörumerkið okkar við, sem er Quiznos, en árið 2007 gerðum við sérleyfissamning við Quiznos Sub keðjuna í Bandaríkjunum um að reka Quiznos-staði á Íslandi og var sá fyrsti opnaður á nýrri bensínstöð okkar í Norðlingaholti. Við höfum síðan verið að opna fleiri staði og eru Quiznos- staðirnir nú orðnir níu og á eftir að fjölga á næstu árum. Frekar rólega var farið af stað í markaðssetningu á Quiznos en aukinn kraftur verður settur í verkefnið í vetur. Varðandi bensínstöðvarnar þá komum við nú út úr mjög góðu sumri. Á undanförnum árum höfum við verið með leik sem við köllum Ævintýraeyjan. Þátttakan hefur aldrei verið meiri en í sumar og var met slegið í innsendum stimpilkortum. Vinningar voru dregnir út í hverri viku og aðalvinningarnir voru síðan dregnir út í lok ágúst.“ Eiginkona Sigurðar heitir Elsabet Hulda Baldursdóttir og börnin eru fimm. „Þrjú eigum við saman og tvö átti Elsabet fyrir þegar við kynntumst. Fjölskyldan er stór og dreifð, barnabörnin orðin sex og því í nógu að snúast á þeim vettvangi. Sigríður Hulda, sú elsta, býr í Bolungarvík, Baldur Hafsteinn er næstelstur og býr í Kaupmannahöfn og Haukur Páll, sem er 22 ára, er nýfarinn til Noregs sem atvinnumaður í fótbolta. Hann gerði samning við norskt lið til áramóta og er aldrei að vita nema maður skreppi á einn leik í Noregi, enda fótboltinn lengi verið eitt aðaláhugamál mitt í gegnum tíðina ásamt öðrum íþróttum. Ég var í fótboltanum í Þrótti frá barnsaldri, lék snóker á mínum yngri árum og var í fyrsta landsliðinu í snóker sem fór til keppni erlendis, sneri mér síðan að golfinu af miklum krafti í byrjun en hef ekki verið duglegur á þeim vettvangi síðustu árin.“ Sigurður segir vinnuna skipa stóran sess í lífi sínu og vera áhugamál um leið og það skiptir miklu máli fyrir hann að líða vel í vinnunni. „Ég er vinnusamur maður og þegar ég fer í sumarfrí hér heima þá er ég meira og minna með hugann við vinnuna og slaka ekki almennilega á nema ég fari í frí til útlanda og sjálfsagt er vinnan ein ástæðan fyrir því að ég hef ekki verið nógu duglegur að ferðast innanlands.“ Fólk Sigurður K. Pálsson: „Ég er vinnusamur maður og þegar ég fer í sumarfrí hér heima þá er ég meira og minna með hugann við vinnuna og slaka ekki almennilega á nema ég fari í frí til útlanda.“ markaðsstjóri Olís SIGURÐUR K. PÁLSSON nafn: sigurður k.Pálsson. fæðingarstaður: reykjavík, 1. febrúar 1959. foreldrar: Páll Haukur kristjánsson og svava magnúsdóttir. maki: Elsabet Hulda Baldursdóttir. Börn: sigríður Hulda, 30 ára, Baldur Hafsteinn, 28 ára, kristín Gígja, 24 ára, Haukur Páll, 22 ára og kristjón Geir, 13 ára. menntun: diplomanám við Háskólann í reykjavík. tExti: hiLmar KarLsson

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.