Frjáls verslun - 01.02.2005, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5
F
relsi einkennir flugið og höfð var
einmitt hliðsjón af því við hönnun
nýrra höfuðstöðva flugfélagsins. Allt
skrifstofurýmið er opið, gegnsætt og
sveigjanlegt og til þess fallið að skapa
góð tengsl milli starfsfólks,“ segir Fanney
Hauksdóttir, arkitekt á Akureyri. Hún
hannaði nýjar höfuðstöðvar Excel Airways
í Bretlandi, dótturfélags Avion Group, sem
voru opnaðar í febrúar sl., Í anddyri þeirra
er meðal annars íslenskt stuðlaberg og
fjörugrjót.
Fanney starfar hjá eigin fyrirtæki, AVH,
sem er með starfsstöðvar á Akureyri og
í Reykjavík. Hún á að baki fimmtán ára
feril sem arkitekt og hefur á þeim tíma
hannað margar byggingar á Akureyri,
svo sem Toyotahúsið, Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju, höfuðstöðvar Norðurorku
og Nemendagarða MA. Einnig byggingar
sunnan heiða, svo sem fyrir Air Atlanta,
sem leiddu til verkefnisins við höfuðstöðvar
Avion Group, sem hún segir hafa verið
spennandi og áhugavert.
Fanney hannaði hús Exel Airways
Fanney Hauksdóttir, arkitekt á Akureyri. Hún hefur hannað margar byggingar, m.a. hið glæsi-
lega Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. FV-mynd: Geir Ólafsson