Frjáls verslun - 01.02.2005, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5
Hjónin Frosti Bergsson og Halldóra Mathiesen. Við hlið þeirra er
Ásta Pétursdóttir.
A
skja er nýr umboðsaðili Mercedes Benz á
Íslandi. Fyrirtækið opnaði glæsilega aðstöðu
að Laugavegi 170 hinn 1. mars sl. í 1.200 fer-
metra húsnæði. Þar er glæsilegur sýningarsalur,
fullkomið viðgerðarverkstæði og varahlutalager.
Askja hefur innsiglað samning við
DaimlerChrysler og uppfyllir þær ströngu kröfur
sem hinn fornfrægi lúxusbílaframleiðandi gerir. Í til-
efni opnunarinnar var haldin fjölmenn veisla.
Á meðal gesta var þýski sendiherrann á Íslandi,
Johan Wenzel, en auk hans voru 4 fulltrúar frá
DaimlerChrysler í Þýskalandi. Framkvæmdastjóri
Öskju er Jón Trausti Ólafsson. Starfsmenn verða
fyrst um sinn 20 talsins.
Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, Hans-Georg Deuschle frá
Mercedes Benz, Tryggvi Jónsson, forstjóri Heklu, Johann Wenzl sendiherra, og
Matthias Feuchter frá Mercedes Benz.
Þýski sendiherrann á Íslandi, Johan Wenzel, og Tryggvi Jónsson,
forstjóri Heklu og stjórnarformaður Öskju.
Opnunarhátíð Öskju
Ó
lafur Ólafsson, stjórnarfor-
maður SÍF, sagði á aðal-
fundi félagsins að markmið
þess væri að verða leiðandi í
framleiðslu og sölu á fullunnum
matvælum í Evrópu. Gagnger
endurskipulagning hefði haft í
för með sér breyttar og skýr-
ari áherslur í starfseminni en
félaginu var skipt í fullvinnslu
matvæla annars vegar og sölu
og markaðssetningu lítt unninna
sjávarafurða hins vegar.
Ný stjórn var kosin á fundinum,
en hana skipa: Ólafur Ólafsson,
formaður, Aðalsteinn Ingólfsson,
Guðmundur Hjaltason, Hartmut
M. Krämer, stjórnarmaður
Kingfisher plc, Toupargel
SA og Herlitz AG, og Nadine
Deswasiere, framkvæmda-
stjóri hjá Nestlé í Frakklandi.
Varamaður er Guðmundur
Ásgeirsson.
Ný stjórn SÍF
Ný stjórn SÍF. Ólafur Ólafsson, formaður, Aðalsteinn Ingólfsson,
Nadine Deswasier, Guðmundur Hjaltason og Hartmut M. Krämer.
FRÉTTIR