Frjáls verslun - 01.02.2005, Qupperneq 22
FORSÍÐUGREIN
22 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5
14. ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON
Þorsteinn var mjög virkur fjárfestir þegar hann var í Orca-hópnum sem
lét til sín taka í Íslandsbanka á sínum tíma. Þá kom hann mjög vi›
sögu í Kaldbaki. En eftir a› Kaldbakur og Bur›arás sameinu›ust undir
merkjum Bur›arás og Semherji seldi sinn hlut þar hefur Þorsteinn Már
fyrst og fremst einbeitt sér a› helstu eign sinni, Samherja, þar sem
hann er forstjóri. Núna hefur þa› gerst a› stærstu eigendur Samherja,
félög sem eiga um 55% hlut, hyggjast gera ö›rum hluthöfum yfir-
tökutilbo› og ætla a› taka félagi› út af marka›i í Kauphöll Íslands í
kjölfari›. Þa› gæti raunar bent til þess a› Samherji ætli út í frekari
fjárfestingar á næstu misserum – jafnvel má velta því fyrir sér hvort
breyta eigi félaginu í fjárfestingarfélag. Þorsteinn Már er ótvírætt
foringi þeirra Samherjamanna þótt frændi hans, Kristján Vilhelmsson,
sem er einn þriggja stofnenda félagsins, sé au›vita› mjög samstíga
honum innan Samherja hva› fjárfestingar og eignir snertir.
13. ÞORSTEINN VILHELMSSON
Þorsteinn var einn af stofnendum Samherja og var lengi vel þekkt-
astur sem einn þriggja Samherjafrænda. Hann seldi sinn hlut þar
mjög óvænt fyrir um fimm árum, í ársbyrjun 2000 fyrir um þrjá
milljar›a króna. Var› sú sala tilefni ótal bla›askrifa um kvótapeninga.
Sí›an hefur Þorsteinn veri› mjög virkur í fjárfestingum, fjárfest hér
og þar, og veri› óragur vi› a› selja. Stærsta eign Þorsteins er í
fjárfestingarfélaginu Atorku Group en þa› félag kemur vi› sögu í
Jar›borunum, Lífi, Sæplasti, Afli fjárfestingafélagi, Low & Bonar,
NWF Group. Þorsteinn lag›i í fyrstu áherslu á a› fjárfesta í sjávar-
útvegsfyrirtækjum, atvinnugrein sem hann þekkti vel. Núna er hann
ekki me› neinar fjárfestingar lengur í sjávarútvegi.
15. RÓBERT MELAX
Þa› kemur eflaust ‡msum á óvart a› Róbert Melax, eigandi Dags
Group, sé hér á listanum. En vi› teljum a› hann eigi erindi á list-
ann sem b‡sna virkur fjárfestir upp á sí›kasti›. Hann hóf ferilinn
me› því a› stofna Lyfju ásamt félaga sínum, Inga Gu›jónssyni.
Eftir a› þeir seldu Lyfju hefur Róbert gert sig meira gildandi sem
fjárfestir á eigin vegum. Öllum a› óvörum keypti hann Skífuna af
Nor›urljósum og breytti nafni félagsins í Dag Group fyrir nokkrum
vikum. Þá hefur Róbert fjárfest í Íslandsbanka a› undanförnu og á
þar drjúgan hlut. Hann situr í stjórn Íslandsbanka.