Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 22
20
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
TCM Alþjóðainnheimta
Ingólfsstræti 3
101 Reykjavík
Sími: 552 7500
Fax: 552 7501
Netfang: tcm@lawfirm.is
Veffang: www.tcm.is
Þ&L lögmannsstofa var stofnuð árið
1997 af Sigurbirni Þorbergssyni hdl.
og Helgu Loftsdóttur hdl., en þau
hafa bæði víðtæka þekkingu og
reynslu á sviði samninga- og kröfu-
réttar, auk málflutningsstarfa og
lögfræðilegrar ráðgjafar. Í dag
starfa á lögmannsstofunni þrír lög-
menn, framkvæmdastjóri TCM-al-
þjóðainnheimtu og tveir sérhæfðir
aðstoðarmenn.
„Umsvif innheimtuþjónustu hafa aukist í
starfsemi lögmannsstofunnar og hefur
Þ&L lögmannsstofan nú algera sérstöðu
hérlendis eftir að hún gerðist aðili að
TCM Group International Ltd.,“ segir Sig-
urbjörn Þorbergsson, annar stofnenda
fyrirtækisins. „Með aðild sinni að þessu
alþjóðlega innheimtufyrirtæki getur lög-
mannsstofan boðið viðskiptavinum sín-
um sérhæfða og skilvirka innheimtuþjón-
ustu án kostnaðaráhættu, hvar sem er í
heiminum. Þessi þjónusta er kynnt sem
TCM Alþjóðainnheimta.“
TCM Alþjóðainnheimta er hluti af al-
þjóðlegri keðju innheimtu- og lögfræði-
stofa, TCM Group International Ltd. Fyr-
irtækið sér um innheimtuþjónustu og sel-
ur lánshæfisupplýsingar um fyrirtæki í yfir
100 löndum í öllum heimsálfum. TCM
Group International Ltd. er stærsta inn-
heimtufyrirtæki sinnar tegundar í heimin-
um. „TCM hefur starfað á Íslandi frá árinu
1997 og hefur þjónað bæði fjármála-
stofnunum og útflutningsfyrirtækjum. Allir
sem standa í útflutningi eða í viðskiptum
við erlenda aðila kannast við að við-
skiptakröfur fara í vanskil. Þegar slíkt ger-
ist standa menn frammi fyrir töluverðum
vanda. Mörgum vex þetta mjög í augum
og kannski ekki síst sá ófyrirsjáanlegi
kostnaður sem af innheimtutilraunum
kann að hljótast í útlöndum. Með því að
hafa greiðan aðgang að alþjóðlegri inn-
heimtuþjónustu er hægt að draga veru-
lega úr áhættu í alþjóðlegum viðskipt-
um,“ segir Sigurbjörn. „Hægt er að setja
vandamál í réttan farveg í tíma án þeirra
vandkvæða sem fylgja því að leita uppi
trausta og ábyrga aðila í útlöndum til
verksins. Við erum hér á landi og beinum
málum viðskiptamanna til TCM skrifstofu
viðkomandi lands sem sér um innheimt-
una. Hlutverk TCM Alþjóðainnheimtu er
fyrst og fremst að senda mál á réttan
stað, fylgja eftir innheimtunni, gefa upp-
lýsingar um gang mála til viðskiptavina
og skila innheimtufé.“
Gjaldtaka TCM Alþjóðainnheimtu
byggir á árangri. Ef ekkert innheimtist er
ekki tekin þóknun, annars er tekið fyrir-
fram umsamið hlutfall af innheimtufé.
„Þegar fyrirtæki eru að leita á nýja
markaði eða eru að skipta við fyrirtæki í
útlöndum, sem ekki hefur verið skipt við
áður, er nauðsynlegt að sýna ákveðna
aðgætni. Ekki er alltaf mögulegt að krefj-
ast bankaábyrgðar eða sambærilegrar
greiðslutryggingar. TCM Alþjóðainnheimta
getur útvegað lánshæfisupplýsingar um
fyrirtæki í flestum þeim löndum sem TCM
skrifstofa starfar. Skýrslurnar eru unnar
upp úr opinberum gögnum og einnig sjálf-
stæðri rannsókn ef óskað er eftir viðbótar
upplýsingum. Slíkar skýrslur eru augljós-
lega mjög gagnlegar og ættu útflutnings-
fyrirtæki hiklaust að nýta sér þennan val-
kost,“ segir Sigurbjörn að lokum.
English Summary
TCM Alþjóðainnheimta is a member of TCM Group
International, which is a tightly knit global consortium of credit
management companies. TCM Group International was esta-
blished in 1987 to be an integral part every company’s world-
wide credit and risk management systems. TCM Group
International has a branch network of companies with fifty two
offices in fifty countries, offering expert services in all facets of
credit management, business consultancy, risk management
and investigations. In addition TCM Group has a wide range of
networked agencies in those countries where we do not alrea-
dy have a TCM Group office.
Our slogan is: „Better to know us and not need us... than
need us and not know us.“
Sigurbjörn Þorbergsson,
framkvæmdastjóri TCM
Alþjóðainnheimtu.
Sérhæfð og skilvirk þjónusta
- hvar sem er í heiminum