Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 52
50
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Tempra hf.
Umbúðaframleiðsla
Kaplahrauni 2-4
220 Hafnarfjörður
Sími: 520 5400
Fax: 565 1260
Veffang: www.tempra.is
Páll Sigvaldason, framkvæmdastjóri umbúðadeildar Tempru í hópi samstarfsmanna.
Tempra hf. er 2 ára fyrirtæki en með
yfir 60 ára reynslu af framleiðslu úr
EPS, (Expandable Polystyrene), eða
einangrunarplasti. Tempra varð til
við sameiningu Stjörnusteins og
Húsaplasts. Stjörnusteinn hafði verið
starfræktur um 14 ára skeið í Hafn-
arfirði og var leiðandi í framleiðslu
EPS umbúða fyrir ferskar afurðir. Að
sama skapi var Húsaplast fremst í
flokki í framleiðslu húseinanagrunar
úr sama hráefni en með starfsemi í
Kópavogi. Í dag er Tempra hf.
stærsti framleiðandi umbúða og ein-
angrunar úr EPS á Íslandi og er með
starfsemi á tveimur stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu, húseinangrun að
Dalvegi 24, Kópavogi og umbúða-
framleiðslu að Kaplahrauni 2-4,
Hafnarfirði. Hjá umbúðadeild fyrir-
tækins starfa að jafnaði um 10
manns en heildarstarfsmannafjöldi
fyrirtækisins er um 20.
„Viðskiptavinir umbúðadeildar fyrirtækis-
ins eru mestmegnis fiskverkendur sem
vinna ferskan fisk til útflutnings, aðallega í
flugi. Af öðrum viðskiptavinum fyrirtækis-
ins má nefna grænmetisbændur, mjólkur-
samlög, bakarí, lyfjaframleiðendur og
kjötvinnslur,“ segir Páll Sigvaldason, fram-
kvæmdastjóri umbúðadeildar Tempru.
„Við leggjum mikla áherslu á að fyrir-
tækið sé ekki einungis framleiðslufyrir-
tæki heldur einnig þjónustufyrirtæki við
umbúðalausnir varðandi ferskar afurðir.
Má í því sambandi nefna að hægt er að
nálgast flesta þá hluti sem þarf við út-
flutning á ferskum afurðum í flugi hjá okk-
ur, svo sem kassa, poka, ísmottur, lím-
bönd o.fl. í einni og sömu ferðinni þegar
kassar eru sóttir eða sendir. Okkur er
einnig ákaflega umhugað um gæði fram-
leiðslu okkar, og teljum að við sjáum við-
skiptavinum okkar fyrir gæðavöru og
þjónustu á góðu verði. Við höfum ekki
talið þörf á vottuðu gæðakerfi en rekum
þess í stað innanhúss gæðakerfi sem
hefur gefið góða raun,“ segir Páll.
„Einnig hefur verið lögð mikil áhersla á
að hámarka rekstraröryggi fyrirtækisins
þar sem viðskipti með villt sjávarfang eru
mjög háð ytri skilyrðum eins og veðurfari,
gæftum og framboði á fiskmörkuðum.
Eftirspurn er því sveiflukennd og brýnt að
vélar og tæki séu áreiðanlegar og mögu-
legt sé að koma varavélum við, verði bil-
ana vart. Miklum fjármunum og tíma er
varið í að gera þennan þátt eins vel úr
garði og hægt er. Við erum stoltir af starf-
semi okkar, sérstaklega varðandi gæði
og tæknilega þáttinn, enda fáum við
reglulega heimsóknir frá erlendum aðilum
sem sendir eru af vélaframleiðendum
okkar til að skoða aðstæður.“
„Á sjávarútvegssýningunni munum við
kynna helstu framleiðsluvörur umbúðadeild-
ar fyrirtækisins, EPS kassa eða frauðplast-
kassa í daglegu tali, ísmottur, ísogsmottur
eða bleiur, poka og vörubretti til flugflutn-
inga,“ segir Páll og bætir við: „Sem sagt,
flest það sem þarf til útflutnings ferskra af-
urða í flugi. Einnig verða upplýsingar til stað-
ar varðandi húseinangrunardeild fyrirtækis-
ins, þá sérstaklega í tengslum við einangrun
fyrir kæliklefa ýmiss konar. Einnig verður
nýopnað vefsvæði fyrirtækisins kynnt,
www.tempra.is,“ segir Páll að lokum.
Allt á einum stað