Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 72
70
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Friðrik A. Jónsson ehf.
Eyjarslóð 7
101 Reykjavík
Sími: 552 2111
Fax: 552 2115
Veffang: www.faj.is
Ögmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri Friðriks A. Jónssonar ehf. og Eiríkur Rosberg,
sölustjóri.
Breið lína í fiskileitar-
og siglingatækjum
Fyrirtækið Friðrik A. Jónsson ehf.
var stofnað árið 1942 og er því 60
ára á þessu ári. Í upphafi hóf stofn-
andinn Friðrik A. Jónsson samstarf
við Norðmanninn Willy Simonsen
sem rak fyrirtækið Simonsen Radio
a.s, sem seinna fékk nafnið
SIMRAD sem er og hefur verið eitt
þekktasta nafnið í fiskileitar og sigl-
ingatækjum í sjávarútvegi. Á síldar-
árunum varð bylting í síldarleit með
tilkomu Simrad Astiksins sem þá
var sett í öll helstu síldveiðiskip Ís-
lendinga. Varð þetta upphafið að
sterkri stöðu Friðriks A. Jónssonar
ehf. og Simrad á íslenskum mark-
aði.
Friðrik A. Jónsson hefur átt stóran þátt í
tækjakosti þeirra skipa sem hafa verið
smíðuð á undanförnum árum, jafnt er-
lendis sem innanlands, fyrir íslenskar út-
gerðir. Má þar nefna 8 skip frá kínverskri
skipasmíðastöð í Dalían og systurskip frá
Ósey í Garðabæ, Guðna Ólafsson VE frá
Guangzhou Huang Pu skipasmíðastöð í
Kína. Einnig skipin Hákon EA, Huginn VE
og Árna Friðriksson hafrannsóknarskip,
öll byggð í Chile. Einnig má nefna í þessu
sambandi skipin Vilhelm Þorsteinsson
EA, Ingunni AK, Helgu RE og Stíganda
VE, að ótöldum fjölda krókabáta. Friðrik
A. Jónsson ehf er með mjög breiða línu í
fiskileitar- og siglingatækjum og getur
fyrirtækið afgreitt heildarlausnir í tækja-
búnaði skipa. Simrad hefur komið með
margar nýjungar á markaðinn. Þær nýj-
ustu sem meðal annars verða kynntar á
sjávarútvegssýningunni í Kópavogi:
• Simrad SH80 hátíðnisónar með fjöl-
tíðni 110 til 120kHz og geislastöðug-
leika.
• Simrad SL35 hátíðnisónar, 90kHz eða
160kHz.
• Simrad AP50, ný sjálfstýring sem
einnig er með þverskrúfustjórnun.
• Simrad HS50, GPS Gyro-áttaviti,
hraðvirkur með mikilli nákvæmni.
Einnig kynnum við nýjung í Olex plotter
sem er botnhörkumynd svo og nýjungar í
ljósabúnaði frá Norselight.