Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 120
118
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Johan Rönning hf.
Sundaborg 15
104 Reykjavík
Sími: 520 0800
Fax: 520 0888
Veffang: www.ronning.is
Kristinn Arnar Jóhannesson, markaðsstjóri til vinstri og Guðni Þór Ingvarsson, sölumaður í
raflagnadeild.
Johan Rönning hf. var stofnað árið
1933 og mun því fagna 70 ára af-
mæli sínu á næsta ári. Fyrirtækið
hefur átt þátt í rafvæðingu landsins
frá upphafi. Fyrstu áratugina var
aðaláhersla lögð á rafverktakastarf-
semi en árið 1963 var fyrirtækinu
breytt og snéri það sér alfarið að
innflutningi og heildsölu á rafbúnaði
og öðru efni fyrir verktaka. Í dag er
fyrirtækið stærsti rafbúnaðarinn-
flytjandi á Íslandi.
Johan Rönning hefur haldið sig eingöngu
á rafbúnaðarsviðinu ef frá er talinn rekst-
ur á heimilistækjaverslun sem staðsett er
í Borgartúni. Höfuðstöðvar eru í Sunda-
borg en á Akureyri hefur verið starfrækt
útibú í þrjú ár. Starfsmenn Johan Rönn-
ing hf. eru nú um 45 talsins.
Markmið fyrirtækisins er að vinna með
traustum birgjum. Birgjar, tengdir sjávar-
útvegi, eru t.d. ABB, eitt stærsta rafbún-
aðarfyrirtæki í heimi. Helstu vöruflokkar á
lager Johan Rönning eru: Lagnaefni,
strengir, rafmótorar og stýribúnaður fyrir
rafmótora, rofabúnaður fyrir töflur og
fleira. Helstu viðskiptavinir eru rafverktak-
ar, iðnfyrirtæki, byggingafyrirtæki, orku-
fyrirtæki og ekki síst sjávarútvegsfyrir-
tæki. Johan Rönning hefur að leiðarljósi
að hafa á að skipa vel menntuðu og
hæfu starfsfólki til þess að þjónustan
verði ávallt í fyrirrúmi. Fyrirtækið leggur
áherslu á að þjóna og ráðleggja við-
skiptavinum sínum eftir fremsta megni.
Ekki er óalgengt að starfsmenn fái símtöl
utan af sjó er varða rafbúnað og reyna
menn þá að aðstoða menn eftir bestu
getu og eins að hafa alla íhluti tilbúna er
skipið leggst að bryggju svo hægt sé að
leysa vandann eins fljótt og auðið er.
Jafnframt er séð til þess að umboðsaðil-
ar ABB í viðkomandi landi geti þjónustað
íslensk skip í erlendum höfnum ef þörf er
á því.
Þjónusta og þekking
í fyrirrúmi hjá Rönning