Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 80
78
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Segull ehf.
Hólmaslóð 6
101 Reykjavík
Sími: 551 5460
Fax: 552 6282
Veffang: www.segull.is
Jón Þór Friðvinsson lengst til hægri ásamt Ófeigi Sigurðssyni og Þorgeiri Guðmundssyni.
Vönduð vinnubrögð
og vanir fagmenn
Segull ehf. var upphaflega stofnað
árið 1939 af Vilbergi Guðmundssyni
og fleirum en árið 2000 stofnuðu
nokkrir starfsmenn nýtt félag um
reksturinn. Frá upphafi hefur við-
gerðaþjónusta fyrir sjávarútveginn
verið í öndvegi en almenn rafverk-
takastarfsemi, innflutningur og
verslun með lampa og rafbúnað
varð fljótlega snar þáttur í rekstri
fyrirtækisins.
„Í dag starfa hjá okkur um 15 manns.
Rafvirkjar, rafvélavirkjar, tæknifræðingur
og stjórnunar- og viðskiptafólk,“ segir
Jón Þór Friðvinsson framkvæmdastjóri
Seguls ehf. „Við leggjum áherslu á skjóta
og góða þjónustu enda búa starfsmenn
okkar yfir mikilli reynslu og þekkingu,
hver á sínu sviði.“
Starfsemi Seguls tekur yfir þrjú svið:
Innflutningur
Að sögn Jóns Þórs hefur innflutningur
verið ört vaxandi þáttur í starfsemi Seg-
uls undanfarið. „Hér má nefna ýmsan raf-
búnað svo sem hleðslutæki, lampa
mælitæki og margt fleira.“ Segull flytur
einnig inn raf- og segulbylgjumæla frá
Aaronia, einangrun og lakkvír fyrir rafvélar
og spenna frá Isodraht og sérhæfðan
ljósabúnað sem þolir bæði raka og vatn
frá Wibre. Einnig má nefna sjálfvirk
hleðslutæki fyrir allar aðstæður frá Tystor,
traustan og viðurkenndan raf- og lampa-
búnað fyrir skip frá Light Partner, ís- og
leitarkastara í skip og báta frá Astra Lux
og flóðljós og götulýsingarbúnað frá CU
Phosco Lighting.
Rafverktakar
„Segull getur boðið viskiptavinum sínum
heildarlausn á rafkerfum allt frá hönnun til
verkloka, segir Jón Þór. „Við erum með
fjölbreytta rafverktakastarfsemi, bæði ný-
lagnir og breytingar á rafkerfum í bygg-
ingum og skipum. Auk almennra raflagna
annast starfsmenn Seguls uppsetningu á
síma- og tölvulögnum ásamt bruna-,
vakt- og viðvörunarkerfum. Viðgerðar-
þjónusta okkar leitast við að veita fyri-
tækjum, stofnunum, bátum og skipum
skjóta og faglega þjónustu.“ Vönduð
vinnbrögð og vanir fagmenn tryggja góð-
an árangur.
Rafvélaverkstæði
Á rafvélaverkstæði Seguls er gert við all-
ar gerðir rafmótora, spenna og rafala.
„Hafið samband við okkur og leitið til-
boða í vindingar á rafmótorum. Við tök-
um einnig að okkur viðgerðir á ýmsum
tækjum og vélum, svo sem dælum,
pressum, loftblásurum, færibandamótor-
um og fleiru,“ segir Jón Þór að lokum.
Að auki annast verkstæði Seguls við-
gerðir á tækjum og vélum frá heildversl-
un A.Wendel og Flygt-dælum fyrir Dan-
foss.
Áratuga reynsla og þekking tryggir
gæðin.