Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 42
40
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Securitas hf.
Síðumúla 23
108 Reykjavík
Sími: 580 7000
Fax: 580 7070
Veffang: www.securitas.is
Sigurður Ingvarsson, sölustjóri hjá Securitas.
Securitas leggur mikla áherslu
á þjónustu við íslensk fiskiskip
Securitas hefur sett upp nálægt
100 Inergen slökkvikerfi frá 1994,
en fyrstu Inergen slökkvikerfin
voru sett upp í handritageymslum
og tölvuveri Þjóðarbókhlöðu fyrir
opnun stofnunarinnar. Tveimur
árum síðar voru fyrstu Inergen
slökkvikerfin sett upp í vélarúmum
skipa og eru nú yfir 30 skip og
bátar með slík slökkvikerfi.
„Inergen er vistvænn slökkvimiðill sem
samsettur er úr lofttegundum sem þegar
eru fyrir í andrúmsloftinu en í breyttum
hlutföllum, sem er 52% köfnunarefni,
40% argon og 8% kolsýra,“ segir Sigurð-
ur Ingvarsson, sölustjóri hjá Securitas.
„Slökkvimiðlinum er hleypt inn í rýmin í
50% blöndu. Við það lækkar súrefnisinni-
hald loftsins úr 21% niður fyrir 12% en
brunaferli flestra efna stöðvast þegar súr-
efnisinnihaldið fer niður fyrir 14-15%. Súr-
efnisminnkunin er þó ekki hættuleg fólki
en galdurinn er fólginn í hinu örlitla kol-
sýruinnihaldi Inergen efnisins, sem virkar
þannig á öndunarfærin að andardráttur-
inn verður örari og vinnur þannig upp súr-
efnisminnkunina. Inergen er geymt á gas-
flöskum við 300 bar þrýsting og getur slík
flaska varið 48 rúmmetra rými.“
Verndun ósonlagsins
Eins og kunnugt er eru Íslendingar aðilar
að Montreal-bókuninni um verndun ozon-
lags jarðar og erum við því m.a. skuld-
bundnir til að hætta notkun halon 1301
slökkvikerfa og farga efninu á löglegan
hátt, en því skal lokið fyrir árslok 2003.
Mikið af íslenskum skipum eru enn búin
halon 1301 slökkvikerfum. Inergen kerfi
þykja mjög hentug þegar skipta þarf út
halonkerfum fyrir vistvænni slökkvikerfi.
„Securitas hefur lagt áherslu á að
framkvæma þessi skipti á sem hag-
English Summary
Securitas makes great efforts in servicing icelandic fishing
vessels and has since 1996 been fitting Inergen systems
aboard ships. Inergen is the world’s leading inert gaseous fire
suppression agent. It is environmentally friendly with zero
ozone depletion and, has zero global warming potential.
Inergen is a mixture of nitrogen, argon and carbon dioxide,
and has been specially developed to provide fire protection
for sensitive electrical and electronic instruments and equip-
ment. Inergen extinguishes fire by reducing the oxygen level
in a room to below 15% (the point at which most combusti-
bles will no longer burn). Simultaneously the patented carbon
dioxide in Inergen protects anyone that may be trapped in
the fire area from the effects of the lowered oxygen levels.
Securitas also supplies fire alarms for ships from Notifier and
hand held fire extinguishers from Gloria. The newest addition
that Securitas has to offer is a range of Aerosol fire exting-
huishing systems.