Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 90
88
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Hönnun hf.
Síðumúla 1
108 Reykjavík
Sími: 510 4000
Fax: 510 4001
Veffang: www.honnun.is
Björn Ingi Sveinsson, forstjóri Hönnunar hf.
Verkfræðiþjónusta
fyrir sjávarútveginn
Starfsmenn Hönnunar hafa þekk-
ingu og reynslu til að takast á við
margvísleg verkefni, tengd útgerð
og fiskvinnslu. Fjöldi starfsmanna
Hönnunar og fjölbreytt reynsla
þeirra á öllum sviðum verkfræði
eykur til muna möguleikana á að
koma að nánast öllum verkefnum,
tengdum verkfræði, á hvaða
vinnslustigi sem er. Hönnun býður
fyrirtækjum í sjávarútvegi upp á al-
hliða verkfræðiþjónustu, bæði á
sviði vélbúnaðar og mannvirkja en
það er til mikilla hagsbóta fyrir sjáv-
arútveginn að geta fengið allar
lausnir á einum stað.
Véladeild Hönnunar efldist til muna við
kaup Hönnunar á verkfræðistofunni St.
Ö. Stefánsson ehf., gamalgróinni verk-
fræðistofu sem veitt hafði fjölda fyrirtækja
í fiskiðnaði góða sérfræðiþjónustu í ára-
tugi. Áður en Hönnun festi kaup á verk-
fræðistofunni St. Ö. Stefánsson höfðu
þessir aðilar átt farsælt samstarf við
fjölda krefjandi verkefna í þeirri miklu
uppbyggingu og endurnýjun sem varð í
fiskimjölsiðnaðinum á árunum eftir 1992.
Allir fyrrum starfsmenn St. Ö. Stefánsson
ehf. starfa nú á vélasviði Hönnunar.
Þótt þekking og reynsla starfsmanna
Hönnunar sé mikil á sviði fiskimjölsverk-
smiðja er þekkingin ekki síður á sviði
dælukerfa, svo ekki sé minnst á sjálfan
skipaflotann og fiskvinnsluna. Á liðnum
árum hefur Hönnun tekið að sér fjölmörg
verkefni tengd frystihúsum og flotanum.
Þar má nefna:
• Arðsemisathugarnir fyrir fiskimjöls-
verksmiðjur og frystihús
• Kostnaðar- og framkvæmdaáætlanir
fyrir fiskimjölsverksmiðjur, frystihús og
fiskiskip
• Rekstraráætlanir
• Frumhönnun og gerð útboðsgagna
• Byggingahönnun
• Hlutahönnun og smíðateikningar
• Framkvæmdaeftirlit á öllum stigum
framkvæmda
Meðal verkefna sem unnin hafa verið fyrir
fiskvinnslufyrirtæki á undanförnum árum
má nefna
Fiskimjölsverksmiðjur SR-Mjöls
Starfsmenn Hönnunar sáu um fyrirkomu-
lagshönnun, hlutahönnun og smíðateikn-
ingar á vélbúnaði við endurbætur á fiski-
mjölsverksmiðjum SR-Mjöls á Seyðisfirði
og Siglufirði, auk nýbyggingar SR-Mjöls í
Helguvík. Verksmiðja SR-Mjöls á Seyðis-
firði hefur um árabil leitt aðrar verksmiðjur
í Skandinavíu í framleiðslu hágæða LT-
mjöls. Auk þessa unnu starfsmenn
Hönnunar framleiðslulíkön (bæði fyrir
massa og orku) og rekstraráætlanir
Ný fóðursíló í byggingu við Fóðurblönduna í
Reykjavík. Öll hönnun og framkvæmdaeftirlit
var í höndum Hönnunar.