Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 57
55
Í S L E N S K A S J Á V A R Ú T V E G S S Ý N I N G I N - A U K A B L A Ð Æ G I S
angri. Tæp 50 pör hafa verið seld til inn-
lendra togskipa sem er gott dæmi um
vinsældir þeirra.
Víking hlerar henta einnig mjög vel til
rækjuveiða og mörg minni skipanna hér
heima eru mjög ánægð með reynslu af
notkun þeirra vegna stöðugleika, léttleika
í togi og í upphífingu.
Rækjutogarinn Pétur Jónsson er í fyrsta
túr með Víking hlera, sem eru 16,5m fer-
metra hlerar að stærð og 6000 kg að
þyngd. Fyrstu viðbrögð eru mjög góð.
Víking hlerar eru einnig mjög vinsælir
erlendis. Bara á Spáni höfum við selt yfir
100 pör á síðasta einu og hálfu ári og
vinsældir þeirra fara sívaxandi með hverj-
um mánuði.
Sputnik hlerar
Sputnik hlerarnir eru ætlaðir til upp-
sjávarveiða. Sputnik er sambland
góðra eiginleika FHS flothleranna og El
Cazador hleranna. FHS hlerarnir eru
kraftmestu flottrollshlerar sem mældir
hafa verið og eru notaðir af yfir 90%
þeirra skipa sem stunda úthafskarfa-
veiðar. El Cazador hlerarnir hafa gefið
mjög góða raun við flottrollsveiðar en
mörg pör eru í notkun í Alsaka og
Okotskhafi, flest skipanna í Chile sem
stunda bæði veiðar í flottroll og botn-
troll nota El Cazador.
Tilgangur með Sputnik hleranum er
að ná fram þankrafti FHS hleranna og
stöðugleika El Cazador hleranna.
Hér heima eru Hákon og Áskell með
Sputnik hlera sem hafa komið mjög vel
út við uppsjávarveiðar.
Síðan fyrsta par var afgreitt seinnipart
síðasta árs, þá eru fleiri en 10 pör komin
í notkun, hér heima við uppsjávarveiðar á
síld og loðnu, við Alaska á ufsaveiðar og
við Maurtainiu við veiðar á makríl og
sardínu.
El Cazador og Super Foil hlerar
Eldri tegundir Poly-Ice, Ávalir, Concord,
El Cazador og Super Foil seljast enn vel
og þá sérstaklega El Cazador og Super
Foil.
Á þeim þremur árum sem El Cazador
hafa verið á markaði, hafa á þriðja hundr-
að para verið seld. Þeir henta sérlega vel
til veiða þar sem botnlag er gott og eru
mikið notaðir við rækjuveiðar.
Jafn og stöðugur vöxtur er í sölu Poly-Ice toghlera Hampiðjunnar. Á síðasta ári jókst salan um rúm 20% frá fyrra ári.