Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 74
72
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Sandgerðishöfn
Hafnarvikt/hafnarstarfsm. s: 423 7477
Skrifstofa hafnarstjóra s: 423 7977
Þjónustusími utan vinnutíma:
s: 423 7477 (símsvari)
Fjarskipti á rás 12
Netfang: bjornara@sandgerdi.is
Öldum saman var stunduð sjósókn
frá Sandgerði á opnum bátum,
enda stutt á fengsæl mið. Með til-
komu vélbátanna í byrjun síðustu
aldar, tekur byggðin við Sandgerð-
isvíkina að stækka. Vegna legu vík-
urinnar og bæjarskerseyrarinnar var
þar skjólgott afdrep fyrir vélbátana.
Upphaf hafnarframkvæmda í Sand-
gerði má rekja til umsvifa Ísland-
Færeyjarfélags árið 1908. Félagið
réð þá Matthías Þórðarson til þess
að koma upp útgerðarstöð í Sand-
gerði. Á svonefndum „Hamri“ voru
reistar miklar byggingar og þar fyrir
framan var byggð steinbryggja.
„Stöðugar hafnarbætur síðustu áratugina
hafa leitt til þess að nú er gott skjól í
höfninni í öllum áttum,“ segir Björn Ara-
son, hafnarstjóri Sandgerðishafnar.
Sandgerðishöfn liggur best Faxaflóa-
hafna við hinum fengsælu fiskimiðum í
Miðnessjó, á Eldeyjarsvæðinu og allt
vestur undir Snæfellsnes. Þetta ásamt
góðri þjónustu við höfnina hefur gert
hana að einni vinsælustu höfn á landinu.
„Sandgerðishöfn hefur gengist undir
miklar endurbætur á undanförnum miss-
erum en nýir varnargarðar hafa verið
byggðir og eldri breikkaðir auk þess sem
höfnin sjálf og innsiglingarrennan hafa
verið dýpkaðar. Nú er þar 290 metra
viðlegurými við Norðurgarð og 240 metr-
ar við Suðurbryggju, svo og 5 flotbryggjur
með rými fyrir 70 litla báta, 6 löndunar-
kranar með snjóbræðslukerfi í bryggju-
gólfi, aðgangur að heitu og köldu vatni og
rafmagni (10/125A) og ísverksmiðja þar
sem ísnum er blásið beint um borð í
skip.“
Öll helsta þjónusta er staðsett við
höfnina, s.s. vélsmiðja, verslun með út-
gerðarvörur á línu- og netaútgerð, veit-
ingastaðir og verkstæði sem sérhæfir sig
í viðgerðum og breytingum á smærri
plastbátum auk fjölda annarra þjónustu-
aðila. Í Sandgerði er staðsett fullkomn-
asta björgunarskip SVFÍ, Hannes Þ. Haf-
stein.
Þessi aðbúnaður hefur skipað Sand-
gerðishöfn í röð mestu fiskihafna landsins.
English Summary
Steady improvements on Sandgerði
Harbour in the last decades have
resulted in creating good shelter from
bad weather. New breakwaters have
been built and older ones widened, in
addition to the deepening of the
harbour itself, creating one of the
better fishing harbours in the country.
Sandgerðishöfn er orðin ein mesta fiskihöfn landsins.
Sandgerðishöfn
- ein mesta fiskihöfn landsins
Verið velkomin á bás okkar nr. A80