Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 91
89
Í S L E N S K A S J Á V A R Ú T V E G S S Ý N I N G I N - A U K A B L A Ð Æ G I S
vegna þessara endurbóta á verksmiðjum
SR-Mjöls.
Hraðfrystihús Eskifjarðar
Starfsmenn Hönnunar sáu um gerð fram-
leiðslulíkans fyrir breytingu á heitlofts-
þurrkara verksmiðjunnar. Einnig var fyrir-
komulagshönnun í höndum sérfræðinga
Hönnunar, auk þess sem þeir gerðu smíða-
teikningar og útboðsgögn, bæði vegna
breytingar á þurrkara og vegna uppsetn-
ingu endurþjöppunar soðeimingartækja.
Hönnun og gerð smíðateikninga
vegna endurnýjunar löndunarkerfis hrað-
frystihússins var unnin af starfsmönnum
Hönnunar og að auki fjölmörg verkefni á
sviði bygginga, svo sem mjölturnaundir-
stöður, hönnun 3000m3 lýsisgeymis
samkvæmt nýjum EUROCODE stöðlum
og lekavarnir fyrir lýsisgeyma.
Fiskimjölsverksmiðja
Samherja-F&L í Grindavík
Hönnun og tæknileg markmiðssetning
vegna endurbyggingar fiskimjölsverk-
smiðjunnar voru í höndum sérfræðinga
Hönnunar, einnig gerð og umsjón og
tækjasamningar.
Síldarvinnslan Neskaupsstað
Starfsmenn Hönnunar sáu um gerð
framleiðslulíkans fyrir breytingu á heit-
loftsþurrkara fiskimjölsverksmiðjunnar.
Fyrirkomulagshönnun Síldarvinnslunnar
var í höndum sérfræðinga Hönnunar,
ásamt gerð smíðateikninga og gerð út-
boðsgagna, bæði vegna breytinga á
þurrkara og uppsetningu á endurþjöpp-
un soðeimingartækja.
Hönnun og byggingarstjórn á frysti-
og kæligeymslu Síldarvinnslunnar var í
höndum sérfræðinga Hönnunar sem
einnig voru hönnuðir og ráðgjafar við
byggingu nýrrar fiskvinnslustöðvar Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað.
Huginn VE-55
Sérfræðingar Hönnunar sáu um frum-
hönnun og gerð útboðsgagna vegna
nýrrar fiskvinnslu- og frystilínu fyrir upp-
sjávarfisk um borð í tog- og nótaveiði-
skipinu Huginn VE-55. Þessi búnaður
hefur þegar verið tekinn í notkun og
stóðst allar áætlanir um afköst.
Lýsisgeymar á Eskifirði, hannaðir efir ströngum stöðlum frá Eurocode.
Hönnun sá um alla verkfræðitengda vinnu við geymana.
Nýir vinnslugeymar við MVR eimingartæki fiskimjölsverksmiðju
Hraðfrystihúss Eskifjarðar.
Hlýraeldisstöð
Þá hafa sérfræðingar Hönnunar unnið að
uppbyggingu hlýraeldisstöðvar í Nes-
kaupstað fyrir Hlýra ehf.
Aðalstöðvar Hönnunar eru í Reykjavík
en starfsstöðvar eru víða um land, til
mikilla hagsbóta fyrir viðskiptavini Hönn-
unar. Starfsstöðvarnar á Akureyri, Akra-
nesi og Austurlandi eru í nágrenni við
helstu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki
landsins.