Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Blaðsíða 5
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
107
í nýja stúdentagarðinum verða auk íbúða fyrir garðprófast
og húsvörð o. fl. herbergi fyrir um sextíu stúdenta, en sennilega
verður unnt að koma fleirum fyrir, ef að er þrengt, og verður
þess ekki vanþörf, þar sem búizt er við, að yfir liundrað stú-
dentar verði húsnæðislausir í haust. í framtíðinni ættu báðir
stúdentagarðarnir að geta nokkurn veginn fullnægt húsnæðis-
þörf háskólastúdenta.
Uppdrætti að hinni nýju byggingu gerði Sigurður Guðmunds-
son, húsameistari, sem einnig hefur teiknað gamla Garð. Hefur
honum tekizt prýðilega. Húsið er hið smekklegasta, stíllinn ein-
faldur og fallegur, hæði utan húss og innan. Er sennilegt, að
þetta húsalag eigi sér mikla framtíð í íbúðarhverfum Reykja-
víkur, þegar bærinn vex og liorfið verður frá því að byggja ein-
býlishús.
Með nýja stúdentagarðinum er aðeins bætt úr brýnustu þörf.
Eftir sem áður verður að halda áfram baráttunni fyrir því að
endurheimta gamla Garð. Er ótrúlegt, að herstjórnin ætli sér
að sitja ár eftir ár yfir hlut stúdenta, en láti sér ekki skiljast,
að nýi stúdentagarðurinn rís sem staðfesting og ítrekun á kröf-
um stúdenta og Jijóðarinnar allrar, að Garður og aðrar íslenzkar
menntastofnanir séu frjálsar í höndum íslendinga.
MÁLVERKASÝNING KJARVALS. Kjarval er á flestan hátt
mjög sérstæður meðal islenzkra málara. Hann er t. d. mest ham-
hleypa jieirra allra. En þrátt fyrir óhemju afköst, er fátitt að
hann haldi sýningar. Honum helzt ekki á myndum sínum. Þær
eru komnar á tvist og bast, áður en hann veit um sjálfur. Kjar-
val er orðinn þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Meðal annars kunna
menn ýmsar sögur af örlæti hans á málverk. Það þykja tíðindi,
að hann skyldi í haust koma upp sýningu með yfir þrjátiu mynd-
um, sem hann hefur málað síðustu mánuði og ekki gloprað úr
hendi sér jafnóðum.
í hamförum sínum hefur Kjarval ekki alltaf gætt þess að
vanda sig. Það er jafn viðurkennt og hitt, að hann sé meistari
og snillingur, þegar honum tekst bezt upp, og allar bera myndir
hans á einhvern hátt vitni snilligáfu hans. Svo sterkur er per-
sónuleiki hans eða liandbragð hans svo sérkennilegt, að mynd-
ir hans eru alltaf auðþekktar. Einn meginkostur Ivjarvals hefur
verið hugmyndaauður hans, sífrjó ímyndunargáfa. Hann hi./ur
hvað eftir annað komið mönnum á óvart með nýjum viðhorfum.
Ekki sizt þessvegna hafa menn dáðst að honum og séð i gegn-
um fingur við hann, þó að hann léti margt fara frá sér aðeins hálf-
8*