Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Blaðsíða 71
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
173
sem menn hafa trú meiri eða minni á menningarmögu-
Ieikum kaii])staðabúa, þá er það víst, aS án sveitalífs fær
íslenzkt þjóSlíf ekki staSizt. Á ég þá ekki aðeins við það,
að á landi voru er trauðla lífvænlegt án þess að framleiða
mjólk og kjöt, ull og skinn, heldur engu síður hitt, að
þar sem öll saga þjóðarinnar er jafn nátengd sveitalífi,
svo og tungan og máltak hennar, þá er torvelt að hugsa
sér íslenzka þjóðmenningu, án þess að hún standi föstum
rótum um sveitir landsins.
Um þetta virðast reyndar allir málsmetandi menn á Is-
landi sammála. En fólk verður jafnframt að gera sér
ljóst, eins og fyrr er að vikið, að landbúnaðarstörf og
strjálhýli er i sjálfu sér engin trygging fvrir menningu.
Sveitunum er hrýn nauðsyn, um leið og þær fylgjast með
tímanum um húnaðarhætti og menningarstrauma, að halda
lífrænu sambandi við sögu og hókmenntir þjóðarinnar
að fornu og nýju, eins og sveitafólk hefur gert hér á landi
frá öndverðu, þær verSa að halda áfram að leggja sjálf-
uni sér og þjóðinni allri til skáld, rithöfunda og fræðaþuli,
og þær þurfa að eiga með heiðri og sóma skilið hað lof,
að alþýðumenntun sé þar í bezta lagi.
Hugsum okkur, að sveitirnar séu enn á þessu menningar-
stigi, þar sem hezt lætur, en vissulega fer því fjarri sums
staðar. En hvernig verður þetta, þegar börnin sem nú al-
ast upp í sveitunum eru fulltíða með þeirri aðstöðu, er
þau hafa almennt til mennta? Einhverjir munu hafa til að
segja, að sú aðstaða sé a. m. k. ekki lakari en oft hafi
verið áður i sveitum þessa lands. En samanburður af þvi
tagi er fávislegur og kemur ekki nærri kjarna málsins.
Svo sem augljóst má þykja, eru takmörk fyrir þvi,
sem fjárframlög og opinberar aðgerðir fá til vegar kom-
ið í menningarmálum. En þegar litið er á námfýsi og
þrautseigju sveitafólks á íslandi, má fullyrða, að fé, sem
varið er til að bæta menningaraðstöðu þess, komi að mikl-
um notum að tilskildu því, að framkvæmdir séu nógu
gagngerðar. Hér kemur að vísu margt til greina, svo sem