Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Blaðsíða 12
114
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Gaulle og brezku stjórnarinnar. Gekk hann í gildi 7. ágúst
1940 og kveður á um notkun hersins og þjónustuskilmála.
Við þetta tækifæri var það, sem Winston Churchill lýsti
Iiátíðlega yfir þeirri ákvörðun hrezku stjórnarinnar, „að
tryggja fullkomið sjálfstæði og stórveldisaðstöðu Frakk-
lands, þegar vopn Bandamanna hafa borið sigur af hólmi“.
Þetta var hinn fyrsti stórsigur, unninn með siðferðisþrek-
inu. , i ' : j ' J 4®
Síðan hafa, svo sem kunnugt er, herir striðandi Frakk-
lands haldið haráttunni sleitulaust áfram. Það voru sveit-
ir úr franska landhernum, sem fyrstar hófu árás á stöðvar
óvinanna við Sidi Barani og Tobruk. Það voru stríðandi
Frakkar, sem í Erythreu og Libyu unnu sigrana við Keren,
Massaouah, Murzuk og Kufra. Þeir voru það einnig, sem
nýlega vörðu Bir-Hakeim af þeim hetjuskap, sem kunnugt
er, og fengu þeir að launum hreysti sinnar orðsendingu í
miðjum bardaga frá yfirmanni 8. hers Breta svohljóðandi:
„Dæmi yðar er til fyrirmyndar fyrir oss alla“, og síðar
hlotnaðist þeim sérstakur heiður, að orustum loknum,
með svohljóðandi orðsendingu yfirherstjórnar Banda-
manna í Mið-Austurlöndum: Hinar sameinuðu þjóðir
standa í mikilli skuld þakklætis og aðdáunar gagnvart 1.
herfylki frjálsra Frakka og hinum hugdjarfa foringja þess,
Koenig hershöfðingja“. Sjóliðið hefur ekki síður verið at-
hafnasamt. Fjöldi herskipa og kaupskipa hefur án afláts
öslað öll höf heimsins. Um flugvclar Lorrainekrossins er
það að segja, að þær hafa svifið með frönsku fánalitina
um geiminn yfir öllum löndum, þar sem barizt hefur ver-
ið, yfir Afríku, Stóra-Bretlandi, Þýzkalandi, hernumda
hluta Frakklands. Sjóliðar og flugmenn hafa því einnig
haldið uppi fornum heiðri franskra vopna.
Þannig er orðinn að veruleika fyrsti þátturinn í stefnu-
skrá de Gaulle: Vopnaðri baráttu er haldið áfram.
Varðveizla nýlenduríkisins var annar þáttur stefnusknár-
innar. Þar liafa einnig náðst mikilsverðir áfangar. Sá
fjTsti, er nýlendur á Indlandi gengu lionum á hönd, því