Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Blaðsíða 82
184
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
En þótt Mál og menning komi verki sinu fram, ræður hún
ekki við dýrtiðina. Fyrir strið áætluðum við Arf íslendinga, fimm
40 arka bindi, á 35 krónur handa áskrifendum, þ. e. 7 krónur
livert bindi. Við teljum enn, að þessi áætlun geti staðizt með
verðlagsbreytingu samkvæmt vísitölu, þó að prentkostnaður nú
fari annars langt fram úr vísitöluliækkun. Við treystum okkur
því til að ákveða verð þessa bindis, sem er 46 arkir, 15 krónur
handa áskrifendum. Við þykjumst setja lausasöluverð bókarinnar
mjög lágt á 45 kr., samanborið við annað bókaverð nú. Fimmtán
króna verðið, jafnt og framkvæmd útgáfunnar að öðru leyti,
væri ekki hugsanlegt, ef áskrifendur hefðu ekki sýnt félaginu
það traust að greiða til útgáfunnar fyrirfram, svo að við gát-
um keypt hluta af pappírnum á hóflegu verði. Áskrifendur njóta
nú þess, er þeir hafa til unnið, að fá verkið ólrúlega ódýrt,
þótt hin gífuriega verðhækkun hindri, að krónutalan haldist
hin sama og áætlað var, enda mun engum geta komið slíkt i
hug lengur. Félagsmenn aðra, þótt ekki hafi gerzt áskrifendur,
viljum við láta njóta sem beztra kjara, og fá þeir bindið á
30 kr., eða með þriðjungs afslætti frá lausasöluverði.
Með aukagjaldinu í ár liafa áskrifendur greitt 20 krónur til
Arfs íslendinga fyrirfram. Fyrir þessa peninga fá þcir íslenzka
menningu I, og eiga þá inni 5 kr. upp í næsta bindi. Nú skor-
um við enn á þessa félagsmenn, er með drengilegum stuðningi
sínum hafa gert okkur kleift að hrinda útgáfunni af stað, að
greiða Arfi íslendinga vísitöluhækkunina á aukagjald sitt, treyst-
um þeim til að hækka aukagjald sitt um 20 kr. fyrir næstu
áramót, og eiga þeir þá 25 kr. inni upp í næstu bindi, sem enn
er ekki hægt að ákveða verð á. Þessi greiðsla er okkur jafn
nauðsynleg og áður, þvi að við verðum að leysa út pappír í öll
bindin strax og greiða allan kostnað við staðgreiðslu.
Ég minnist hrifningar okkar sumarið 1939 yfir útgáfuhugmynd-
inni að Arfi íslendinga. Það hvarflaði ekki að okkur efasemd
um það, að þessi hugmynd yrði framkvæmd, hvað sem á bját-
aði. En ánægðir erum við nú að geta farið að efna loforð okk-
ar og geta sýnt, að Mál og menning var því trausti vaxin,
sem hátt á sjötta þúsund íslendingar hafa horið til félagsins.
Kr. E. A.
TVÆR LEIÐRÉTTINGAR. í síðasta hefti liafa komizt tvær
illkynjaðar prentvillur í ritgerð mína um bók Theodórs Frið-
rikssonar: í verum. Á hls. 79 stendur: og hættir að hundsa þræla-
raeistarann. Þarna á að standa: Og hættir á að hundsa þræla-
meistarann. Á bls. 89 segir, að Menntamálaráð hafi lækkað styrk
Theodórs um 300 krónur. Þetta er ekki rétt. Lækkun Mennta-
málaráðs var 500 krónur. Þórbergur Þórðarson.
Félagsprentsmiðjan h.f.