Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Qupperneq 27
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
129
fengi aö koma inn í, nema ráðskönan rétt einstöku sinn-
um til þess að gera lireint. Þarna væri hann, sagði Páll,
stundum einhvern þremilinn að hardúsa á föstudagskveld-
um og laugardögum. Fyrst eftir að faktorinn kom, hafði
fölki að sögn staðið talsverður stuggur af þessu, en nú voru
flestir hættir að veita því nokkra sérstaka eftirtekt; en
eitthvað væri nú samt kyndugt við það. Fólk liéldi sem
sé, að hann hefði þarna í frammi einhverskonar forneskju
— afguðadýrkun eða eitthvað því um líkt, þvi að menn
sögðu, að hann væri Gyðingur. — Hann vissi nú reynd-
ar ekkert um þetta með neinni vissu, sagði Páll — en
eitthvað væri það þó skrýtið. Þeir hefðu víst enga rétta,
kristilega trú þessir Gyðingar, þó þeir auðvitað væru
danskir, og eins og aðrir menn að öðru leyti. —
Sumir héldu nú líka, að liann vissi jafnlangt nefi sínu,
faktorinn, og liefðu menn fyrir satt, að honum kæmi fátt
á óvart. — En svo flýtti Páll sér að hæta við, að ekkert
vissi hann samt misjafnt í fari hans. — Þvert á móti,
þetta væri mesti reiðumaður í öllum viðskiptum og færi
vel með allt sitt fólk, — betur en menn hefðu átt að venj-
ast af þeim dönsku þar á staðnum, áður en hann kom.
Þann vitnisburð mundu allir vilja gefa honum.
Nýja utanbúðarmanninum er ekki meira en svo um
þetta gefið, sem hann hevrir. Að visu veit hann talsverð
deili á Gyðingum frá Kaupmannahöfn og hefur i sjálfu
sér enga hleypidóma gagnvart þeim. En hann er sjálfur
sannkristinn maður, sem biður fyrir sér og signir sig
bæði kvelds og morgna, og fer í kirkju, þegar hann á hægt
með; og hann hefur gengið að því visu, að blessaður fakt-
orinn geri slíkt hið sama, nema hvað hann sé þeim mun
sannkristnari, sem hann er honum meiri og betri maður.
— Samt sem áður finnur hann hjá sér köllun til þess að
afsaka villutrú faktorsins, og segir, að liann geti auðvitað
ekki að þessu gert. Hann verði eins og aðrir að trúa því,
sem honum hafi verið kennt og innrætt, svo að ef nokkr-
um sé urn að kenna, þá sé það helzt foreldrunum, sem