Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Side 53

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Side 53
TÍMARIT MALS OG MENNINGAR 155 sök, að hún kastar fyrir borð ýmsum „skemmtiatriðum“ gömlu listarinnar. Max-gir, sem aldrei hafa skilið til fulls raunverulegt gildi málverka, en skemmt sér við að skoða aukaatriðin, t. d. háttalag fólksins, sem myndin sýnir, eða notið endurminninga frá fögrum stað, sem málarinn valdi til verkefnis, og ekki orðið snortnir af listrænum tilþrifum verksins, þrótti lits og línu, festu og skýrleika byggingarinnar, eða sérslæðu viðhorfi listamannsins, ásaka nútímalistina um vöntun lifræns inntaks. Frá her- lmðum fólks með slíkar skoðanir, sem jafnframt er hald- ið þeirri meinloku, að einkaviðhorf þess séu ófrávíkj- anlega rétt, er því fleipri dreift meðal manna, að mynd- iist tuttugustu aldarinnar, eins og liún er hezt, eigi ekkert erindi til almennings og engan tilverurétt. Þetta er hlið- stætt þvi, að framúrskarandi tónlistaverk ættu að dæm- ast dauð og ómerk sökum þess, að þau öðrum fremur snerta við innsta kjarna tónlistarinnar. II. Það er ekki hægt að skrifa um málaralist nútímans án þess að minnast þriggja snillinga frá síðari hluta nítjándu aldar, sem undirbjuggu með starfi sínu sókn þá, er hófst eftir aldamótin. Þessir menn eru Paul Cezanne, Vincent van Gogli og Poul Gauguin. I list þeirra urðu ávextir „impressjónismans“ fullþroskaðir: höfuðkostir stefnunn- ar sameinaðir skilningi hinna þriggja jötna á takmörkun- um hennar og um leið vilja þeirra til að komast út fyrir þær. Verksvið impressjónismans var þröngt. Atliugun á Ijósinu og áhrifum veðrabrigða á útlit landslags var höf- uð-inntakið í viðleitni tjáenda stefnunnar. En kapphlaup það, er þeir háðu við sólarljósið, kom þeim til að'beita lit- unum með nýju móti, allt öðrum hætti en tíðkaðist lijá fyrirrennurunum. Sterkustu, skærustu litirnir urðu beztu vopnin í baráttu þessara rnálara, og þeim var beitt öllum með tölu. Eðlileg óbeit impressjónistanna á starfsemi fyr- 11*

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.