Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Page 57

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1942, Page 57
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 159 leg viðhorf mannsins Cezannes lil jarðarinnar, gróðurs hennar og loftsins, sem leikur um hana. í höndum Cezannes, van Goghs og Gauguins tóku litir og línur að lifa sérstæðu lífi, og í verkum Cezannes, sem er einn djúpsæasti andi heimslistarinnar, öðlaðist hinn gamli efniviður málaralistarinnar nýtt gildi, auðlegð, mýkt og þrótt, sem er sjaldgæfur jafnvel hjá mestu snill- ingum, sem saga myndlistarinnar getur. En allir þrir eiga þeir sammerkt í því að hafa skilið, hver nauðsyn var á rækilegri endurskoðun á eðli málaralistarinnar, og beina komandi kvnslóð á heilbrigða braut. m. Van Gogh dó árið 1890, Gauguin 1903 og Paul Cezanne 1906, svo almenningur var tæplega farinn að sætta sig við list þeirra, þegar Henri Matisse kom fram á sjónarsvið- ið ásamt nokkrum ungum frönskum málurum og boð- aði hið rökrétta framhald. Höfuðinntak stefnu þeirra var alger lausn málaralistarinnar, eða lækja hennar, úr viðjum natúralismans, og þar með úr skorðum úreltra hug- mynda um fegurð og tilgang málverka. Litum, línu og formi var hér ekki stillt saman í því augnamiði að búa til „fallegar myndir“, ef þar með er átt við viðfelldnar litasamstæður. Að álili þessara málara var nauðsynlegt að þurrka út allar tilraunir til beinnar og óbeinnar eftirlík- ingar á ýmsum efnum náttúrunnar. Úr efnivið þeirra lita, sem myndir eru af gerðar, er ekki hægt að búa til mold, gras né tré, en hinsvegar er unnt að skapa auðlegð blæ- brigða, andstæður sterkra lita, sem með spenningu sín á milli mynda áhrifaríka lieild, viðburð í línum og litum, sem orkar á áhorfandann með svipuðum hætti og náttúru- fyrirbæri. Litir geta verkað örvandi og æsandi, róandi og svalandi, heitir og kaldir, eftir því hvernig þeim er skipað saman. í þessu felst máttur þeirra. Séu þeir íklæddir ham fjarskyldra efna, mást þessir eiginleikar út, og í stað tjáningar koma tilraunir til blekkinga. Línurnar eru háð-

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.